Édouard Philippe nýr forsætisráðherra Frakklands Atli Ísleifsson skrifar 15. maí 2017 13:00 Édouard Philippe. Vísir/AFP
Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur skipað hægrimanninn Édouard Philippe sem nýjan forsætisráðherra Frakklands. Édouard Philippe er hægrimaður úr flokki Repúblikana og hefur gegnt embætti borgarstjóra Le Havre frá árinu 2010. Þá hefur hann setið á þingi frá árinu 2012. Hinn 46 ára Philippe er ekki þekkt nafn í frönskum stjórnmálum, sem getur reynst honum vel. Macron hefur heitið því standa fyrir endurnýjun í frönskum stjórnmálum. Philippe er lögfræðingur og hefur stundað nám í sömu skólum og Macron. AFP segir þá vera á sömu skoðun þegar kemur bæði að efnahags- og félagsmálum. Er talið að með skipun Philippe sé Macron að reyna að fá Repúblikana inn á miðju stjórnmálanna, en Macron þarf að fá þingið með sér til að ná umbókatillögum sínum í gegn. Greint var frá skipun Philippe á fréttamannafundi klukkan 12:50. Phillippe tekur við embættinu af Bernard Cazeneuve sem gegnt hefur embættinu frá í desember. Cazeneuve varð forsætisráðherra eftir að Manuel Valls lét af embætti þegar hann sóttist eftir að verða forsetaefni Sósíalista. Macron tók við embætti forseta Frakklands í gær, viku eftir að hafa unnið sigur í síðari umferð frönsku forsetakosninganna. Macron hafði þar betur gegn Marine Le Pen, leiðtoga Þjóðfylkingarinnar.
Frakkland Tengdar fréttir Macron tilkynnir um nýjan forsætisráðherra í dag Dagskrá Emmanuel Macron er þéttskipuð í dag en hann tók formlega við embætti forseta Frakklands í gær. 15. maí 2017 08:20 Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Innlent Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Erlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Átökin ná nýjum hæðum Erlent Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Erlent Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Innlent Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Þjófar réðust á starfsmann verslunar Innlent Fleiri fréttir Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Sjá meira
Macron tilkynnir um nýjan forsætisráðherra í dag Dagskrá Emmanuel Macron er þéttskipuð í dag en hann tók formlega við embætti forseta Frakklands í gær. 15. maí 2017 08:20