Jette Margrethe Dige Rokos er ein þeirra sem flúðu heimili sín. Hún er dönsk, búsett í Tampa og var áður kennari í Borgarholtsskóla. Flúði hún til borgarinnar Nashville í Tennessee.
„Við fórum frá Tampa á fimmtudagsmorgun. Við búum í Tampa nálægt MacDill herstöðinni og það er sjór þar báðum megin við okkur. Það er búist við því allra versta,“ segir Jette.

Ég á vinkonu í Sarasota og hún var ein heima með tvo stráka. Hún gat ekki fengið bensín á bílinn sinn og situr þess vegna ennþá föst í Sarasota.Hún keyrði alla leið til Nashville á fimmtudag og segir það hafa tekið fimmtán klukkustundir. „Alla leiðina út úr Flórída var hvergi hægt að fá bensín. Það var strax á fimmtudag. Við stoppuðum til dæmis í bæ sem heitir Perry, alveg nyrst í Flórída. Þar var dálítið óhugnanlegt að sjá plastpoka utan um bensíndælurnar. Þar var ekkert að fá.“
Jette segir sig og sína vel setta. Hún hafi verið vel undirbúin, með nóg af bensíni, peninga í lausu og á ágætis bíl. Sömu sögu var ekki að segja af vinafólki hennar sem býr í borginni Sarasota í Flórída. „Ég á vinkonu í Sarasota og hún var ein heima með tvo stráka. Hún gat ekki fengið bensín á bílinn sinn og situr þess vegna ennþá föst í Sarasota.“

Jette segist hins vegar ekki hafa miklar áhyggjur af heimili sínu. Hún búi í sterkbyggðu húsi sem sé með þeim betri á svæðinu.

Samkvæmt nýjustu spá bandarísku veðurstofunnar áður en Fréttablaðið fór í prentun var talið líklegt að stormurinn myndi fara í norðvestur en áður hafði því verið spáð að Irma færi í norðaustur og myndi ganga yfir austurströnd Georgíu.
Vegna þess sagðist Rick Scott, ríkisstjóri Flórída, hafa þungar áhyggjur af vesturströnd ríkisins í viðtali við NBC í gær. „Við ætlum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að vernda hvern einasta íbúa ríkisins,“ sagði ríkisstjórinn.
Scott sagði jafnframt að um 10.000 þjóðaröryggisverðir hefðu verið kallaðir til ríkisins til að hjálpa þeim sem urðu eftir. „Ég veit að stormurinn er mikið gjöreyðingarafl og lífshættulegur en ég hef einnig miklar áhyggjur af flóðum.“

Þegar Fréttablaðið fór í prentun höfðu þrjú látið lífið í Flórída vegna Irmu, öll létust þau í bílslysum. Að minnsta kosti 27 höfðu látið lífið á eyjum Karíbahafsins en þar gekk stormurinn meðal annars yfir Kúbu, Púertó Ríkó, Sankti Martin og Barbúda með þeim afleiðingum að byggingar hrundu, innviðir löskuðust og rafmagn fór af.