Kim brást í gær við nýjum viðskiptaþvingunum sem Trump fyrirskipaði gegn einræðisríkinu á fimmtudag sem og eldræðu forsetans á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna frá því á mánudag þar sem forsetinn hótaði fyrrnefndri gereyðileggingu ef Kim-stjórnin myndi ekki stöðva kjarnorkuáætlun sína.
Sendi Kim frá sér fyrstu tilkynninguna sem nokkur leiðtogi Norður-Kóreu hefur gefið út á ensku. „Jómfrúarræða Bandaríkjaforseta á sviði Sameinuðu þjóðanna veldur alþjóðasamfélaginu áhyggjum og er til þess fallin að auka á togstreituna á Kóreuskaga. Ég taldi að hann myndi flytja ræðu ólíka þeim sem hann flytur venjulega. En hann var langt frá því að segja nokkuð sem gæti slakað á togstreitunni heldur var hann fádæma dónalegur og bullaði meira en nokkur Bandaríkjaforseti hefur nokkurn tímann gert.“

„Ég veit ekki við hvaða svari Trump bjóst en svarið verður stærra en hann hefði getað ímyndað sér. Ég mun á afdráttarlausan hátt temja þennan elliæra og geðsjúka Bandaríkjamann með eldi mínum,“ segir enn fremur í yfirlýsingu Kims.
Trump svaraði Kim á Twitter í gær. „Kim Jong-un frá Norður-Kóreu, sem er augljóslega geðsjúklingur, er sama þótt hann svelti og drepi þjóð sína. Nú mun reyna á hann sem aldrei fyrr,“ tísti Bandaríkjaforseti.
Frá því Kim tók við taumunum í Norður-Kóreu, eftir andlát föður hans, hefur ríkið gert mun fleiri kjarnorku- og eldflaugatilraunir en áður. Ri Yong-ho, utanríkisráðherra Norður-Kóreu, sagði í gær að svar Asíuríkisins gæti falist í kjarnorkutilraun á Kyrrahafi. „Þetta gæti orðið aflmesta vetnissprengja sem prófuð hefur verið á Kyrrahafinu,“ sagði Ri.
Ráðherrann bætti því þó við að hann hefði í raun ekki hugmynd um hvernig ætti að svara Bandaríkjaforseta, það myndi Kim einn fyrirskipa.
Japanar voru hins vegar ekki hrifnir af orðum Ri, enda hefur Norður-Kórea skotið tveimur eldflaugum í gegnum japanska lofthelgi undanfarinn mánuð. „Orð Norður-Kóreumanna ögra öryggi og stöðugleika á svæðinu. Þau eru algjörlega óásættanleg,“ sagði Yoshihide Suga, talsmaður ríkisstjórnarinnar.
En á meðan leiðtogar Bandaríkjanna og Norður-Kóreu hnakkrífast reyna Kínverjar og Rússar að róa þá niður.
„Allir aðilar ættu að halda aftur af sér frekar en að reyna að ögra hvor öðrum,“ sagði Lu Kang, talsmaður utanríkisráðuneytis Kínverja, við blaðamenn í gær.
Dmitry Peskov, talsmaður ríkisstjórnar Vladimírs Pútin í Rússlandi, tók í sama streng. Sagði hann að yfirvöld í Moskvu hefðu „miklar áhyggjur af þessari vaxandi spennu“.