Maðurinn var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Talið er að einhvers konar vopni eða áhaldi hafi verið beitt við árásina en lögregla hefur ekki viljað gefa upp hvers kyns vopnið sé.
„Þau höfðu átt í stuttu persónulegu sambandi eftir því sem næst verður komist,“ segir Grímur.
Hann vill ekki gefa upp hvort játning liggi fyrir í málinu eða ekki.
„Ég hef ekkert farið út í það sem hefur komið fram í yfirheyrslunum. Þar með talið það.“

Ekkert vitað um ástæður árásarinnar
Grímur segir að yfirheyrslur hafi staðið yfir í nótt og var þeim framhaldið í dag og að málið hafi skýrst töluvert við það.„Við teljum okkur með nokkuð góða mynd af því hvað þarna gerðist.“
Er eitthvað vitað um ástæður að baki árásarinnar?
„Það er auðvitað hluti af því sem varð til rannsóknar, hverjar eru ástæður svona verknaðar og auðvitað er maðurinn réttilega með réttarstöðu grunaðs manns, hann hefur ekki verið dæmdur. Það er hluti af rannsókninni að afla þeirra upplýsinga um hvað viðkomandi hafi gengið til, gangist hann yfirleitt við þessum verknaði.“

Konan var samstundis flutt af vettvangi í sjúkrabíl en hún lést af völdum áverka sinna.
Fjölmargir íbúar á Melunum urðu vitni að því þegar maðurinn var leiddur út úr húsinu í járnum. Lét hann öllum illum látum og þurfti lögregla að beita piparúða til að hemja manninn. Hann var á nærfötunum einum fata og með blóð á líkama sínum. Í framhaldinu var annar maður leiddur af vettvangi en hann er nú laus úr haldi lögreglu.