Það er eitthvað rautt undir nefinu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 21. september 2017 10:00 Tyrfingur segir efni Kartöfluætanna lengi hafa verið búið að banka á dyrnar hjá honum. Vísir/Eyþór
Leikritið mitt Kartöfluæturnar fjallar um nokkuð skrautlega fjölskyldu í Kópavogi sem á ýmis mál óútkljáð innbyrðis. Lísa, aðalpersónan, vann fyrir Rauða krossinn sem hjúkrunarfræðingur í Kósóvó í stríðinu – hún er nagli. Býr núna í gamla fjölskylduhúsinu og hefur verið að gera á því endurbætur síðustu ár en gengur hægt, það er hálfur veggur hér og vantar skáphurð þar. Lísa er rosalega flink í sínu fagi og öllu vön, eins og vænta má um konu sem kemur úr hjálparstarfi erlendis, en hún er kannski ekki alveg eins flink í að koma almennilega fram við dóttur sína og tækla vandamálin heima. Þannig byrjar Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld að lýsa nýjustu afurð sinni – Kartöfluætunum – sem verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu í kvöld, og hann heldur áfram. „Dóttirin er strætóbílstjóri og þarf að fara til sérfræðings í Mjóddinni af því það er eitthvað rautt undir nefinu sem hún veit ekki hvað er. Hún fer svolítið mikið til lækna og í þetta sinn þarf hún að biðja mömmu sína að passa son sinn. Lísu finnst náttúrlega þessi rauði blettur ekki merkilegur miðað við vellandi svöðusárin sem hún hefur þurft að meðhöndla í Kósóvó. En þannig byrjar leikritið að dóttirin biður mömmu sína um pössun og þá hefst eiginlega strembið ferðalag þessara mæðgna í þá átt að ná saman.“ Þegar stjúpsonur Lísu kemur inn í myndina flækist málið verulega, að sögn Tyrfings. „Þá byrjar lítið fjölskyldustríð,“ lýsir hann. „Til að vinna það þarf Lísa að koma hreint fram og segja skilið við stóru stríðshetjuna, það er snúið.“ Leikarar í verkinu eru þau Sigrún Edda Björnsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Vala Kristín Eiríksdóttir og leikstjóri er Ólafur Egill Egilsson. Tyrfingur kveðst svakalega heppinn með allt þetta lið. „Ég skrifaði leikritið fyrir Borgarleikhúsið með Sigrúnu Eddu í huga sem aðalpersónu og hún er á sviðinu eiginlega allan tímann. Edda Björg er dóttirin. Þær Sigrún hafa oft leikið mæðgur áður og maður finnur það alveg. Það er mikil hreyfing á sviðinu. Kartöfluæturnar er krefjandi sýning fyrir Sigrúnu Eddu en hún hefur gríðarlegt þol.“ Tyrfingur segir margar vinkonur sínar eiga hetjur fyrir mæður og þær hafi lýst fyrir honum því hlutskipti. „Ég var búinn að hlusta mikið á þessar vinkonur mínar áður en ég fór að skrifa og fattaði það þegar ég byrjaði á leikritinu að það var lengi búið að banka á dyrnar.“
Menning Mest lesið Þjóðin tjáir sig: Fáránlegt fyrirkomulag, stjörnutúlkar og skortur á menningarlæsi Lífið Lifðu af tvö flugslys sama daginn á Mosfellsheiði Lífið Lærði mikið af öllu hatrinu Lífið Ísland í næstneðsta sæti veðbankanna Lífið „Trylltur þynnkuborgari“ slær í gegn á Íslandi og í Svíþjóð Lífið Einar og Milla eiga von á barni Lífið Myndaveisla: Spennustigið óbærilegt þegar VÆB unnu Söngvakeppnina Lífið Krakkatían: Toy Story, risaeðlur og spænska Lífið VÆB keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision Lífið Tveggja barna miðaldra móðir sem er sjúk í strákinn Gagnrýni Fleiri fréttir Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira