Færslan er með 1354 læk en það er Agnar Freyr Helgason, nýdoktor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem hefur tekið saman gögn um allar færslur sem birst hafa á aðalsíðum stærstu stjórnmálaflokkanna á Facebook frá ársbyrjun til gærdagsins. Agnar greinir frá niðurstöðunum á vefsíðu sinni.
Agnar segir í samantektinni á vef sínum að það hafi komið honum verulega á óvart hversu fáir notendur læka almennt við færslur flokkanna á Facebook.
„Meðalfærslan fær einungis 34 læk og á rúmlega fjórum árum hafa flokkarnir sameiginlega einungis 36 sinnum sett inn færslur sem fá meira en 500 læk. Notendum Facebook virðast því ekki vera neitt sérstaklega í mun að sýna velþóknun sína á því sem flokkarnir bjóða upp á á miðlinum (til samanburðar má nefna að á einungis fimm mánuðum hafa tæplega 60 færslur í hópnum ,,Keypt í Costco Ísl.- Myndir og verð.” fengið yfir 500 læk),“ segir Agnar.
Skoðun hans leiddi í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn á dyggasta stuðningsfólkið á Facebook þar sem 22 af þeim 36 færslum sem hafa fengið fleiri en 500 læk eru færslur frá Sjálfstæðisflokknum. Eins og áður segir er það jafnframt færsla frá þeim flokki sem er með flest læk og næstu tvær færslur á vinsældalistanum einnig en þær eru nokkuð almenns eðlis að sögn Agnars.
Í fjórða sæti er hins vegar færsla frá Flokki fólksins þar sem deilt er frétt af Eyjunni um málaferli forsvarsmanna flokksins gegn ríkinu vegna afturvirkrar skerðingar stjórnvalda á greiðslum til ellilífeyrisþega.
Agnar kannaði líka hversu oft færslum flokkanna er deilt á Facebook en það er talsvert minna um að fólk deili heldur en að það setji læk.
„Að meðaltali er hverri færslu deilt um 5 sinnum og einungis 12 færslur hafa fengið fleiri en 300 deilingar.
Nokkrar færslur hafa þó náð talsverðri útbreiðslu og þar af tvær yfir 1000 deilingum. Annars vegar vantraustsyfirlýsing stjórnarandstöðunnar þann 4. apríl 2016, sem fékk 1326 deilingar:
Nánar má kynna sér málið á vef Agnars Freys.