Einn af aðalbófum FIFA: „Besti dagur lífs míns þegar að Bandaríkin komust ekki á HM“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. október 2017 15:00 Jack Warner er glæpamaður. vísir/getty
Jack Warner, fyrrverandi forseti knattspyrnusambands Mið-Ameríku og kyrrahafsins, CONCACAF, gat ekki leynt gleði sinni þegar að Bandaríkin klikkuðu á því að komast á HM í fyrsta sinn í tæpa þrjá áratugi. Bandaríska liðið tapaði fyrir Tríndad og Tóbago sem hafði að engu að keppa í lokaumferðinni og verður ekki með í Rússlandi á næsta ári. Warner er frá Trínidad og Tóbagó en það var ekki bara sigurinn sjálfur sem gladdi hann. Jack Warner er einn af mestu glæpamönnum í sögu FIFA og hefur margsinnis verið ásakaður og dæmdur fyrir mútur og skandala. Hann var einn af þeim ráðamönnum sem voru handteknir þegar að bandarísk dómsmálayfirvöld opinberuðu risastórt hneyksli innan Alþjóðaknattspyrnusambandsins. „Ég gæti ekki verið glaðari. Þetta er besti dagur lífs míns. Þessi sigur gæti ekki mögulega glatt mig meira,“ sagði Warner í útvarpsviðtali í Trínidad en ESPN greinir frá. Warner hefur sakað Bandaríkin um að breyta CONCACAF í algjöra martröð en hann hefur sjaldan litið inn á við og gengist við fjölmörgum glæpum sínum. „Bandaríkin notuðu stjórnvöld til að tæta FIFA í sundur á skelfilegan máta og í gærkvöldi kom Trínidad og Tóbagó Bandaríkjunum á hnén. Fyrir mér eru Bandaríkin bara grín núna,“ sagði Jack Warner.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Fleiri fréttir Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Sjá meira