Markmiðið með tónleikunum er að fá ungt fólk til að kjósa en frítt er inn á tónleikana. Aðgangseyririnn átti að vera sjálfsmynd sem tekin væri við skilti Vökunnar á kjörstöðum. Nú er hins vegar komið babb í bátinn en aðstandendur tónleikanna funduðu með yfirkjörstjörn í morgun.
„Okkar málflutningur hefur hingað til gengið út á það að hvetja fólk til að koma á kjörstað og taka af sér sjálfu en nú er það hugsanlega brot á kosningalögum. Það er sem sagt ólöglegt af okkur að hvetja fólk til að gera eitthvað í skiptum fyrir aðgang á tónleika, það er að gera eitthvað sem snýst um að kjósa. Ég sagði reyndar við kjörstjórn að við værum ekki að gera það heldur værum við að segja fólki að mæta á kjörstað en svo ekkert að fylgjast með hvort þau færu inn eða hvort þau myndu kjósa. Þau sögðu samt að þetta væri á gráu svæði og yrði að vera aðskilið,“ segir Hrönn Sveinsdóttir einn af skipuleggjendum Vökunnar.

Hún segir að þau hafi því tekið þá ákvörðun að vera ekki á kjörstöðum til að hætta ekki á að það séu einhverjir árekstrar. Í staðinn verður skiltum Vökunnar komið upp á almenningsstöðum í Reykjavík og fólk er því beðið um að taka sjálfuna af sér þar, setja hana á samfélagsmiðla undir myllumerkinu #vakan og fá þannig frítt inn á tónleikana.
„Við höfðum áður fengið grænt ljós á að vera fyrir utan kjörstaði en nú er þetta orðið of mikið mál þannig að við viljum ekkert hætta á það að einhver taki því sem brotum á einhverjum lögum. Ég spyr samt á móti hvað með það þegar verið er að keyra fólk á kjörstað?“ segir Hrönn og vísar í 117. grein kosningalaga þar sem segir meðal annars:
„Það er óleyfilegur kosningaáróður og kosningaspjöll:
a. að bera á mann fé eða fríðindi til að hafa áhrif á hvort hann greiðir atkvæði eða hvernig hann greiðir atkvæði, að svipta mann eða ógna manni með sviptingu atvinnu eða hlunninda í sama skyni, að heita á mann fé eða fríðindum ef kosning fari svo eða svo, að torvelda öðrum sókn á kjörfund eða til utankjörfundarkjörstaðar, svo og að beita þvingunarráðstöfunum í sambandi við kosningar, [...]“

Hrönn spyr hvort það séu ekki fríðindi að ná í einhvern og keyra hann upp að dyrum.
„Og ekki nóg með það heldur líka að fylgja honum inn á kjörstað, bíða eftir að hann sé búinn að kjósa og skutla honum heim. Þetta hefur tíðkast í áraraðir hjá stjórnmálaflokkunum.“
Aðstandendur Vökunnar vilja svo benda fólki á að það sé bannað að taka mynd af sér á kjörstað eða taka mynd af kjörseðlinum.
„Þetta hefur verið vandamál í kosningum undanfarin ár og við viljum alls ekki að fólk tengi okkur við eitthvað þannig dót við höfum aldrei hvatt neinn til að taka mynd af sér inni á kjörstað eða af seðlinum. Við höldum hins vegar áfram að hvetja ungt fólk til að kjósa og Vakan verður í Valsheimilinu á kosninganótt.“