Anton Ari missti af meistaraferð Vals vegna meiðsla sem voru fyrst talin alvarleg Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. nóvember 2017 12:30 Anton Ari Einarsson er ekki eins meiddur og talið var fyrst. vísir/stefán
Anton Ari Einarsson, markvörður Íslandsmeistara Vals í Pepsi-deild karla í fótbolta, meiddist, að því fyrst var talið illa, á ökkla í fótbolta á dögunum. Fyrst var haldið að um fótbrot væri að ræða og að hann yrði ekki klár í bátana fyrr en seint á næsta ári en betur fór en á horfðist. Anton Ari var settur rakleiðis í gifs sem margborgaði sig því hann er byrjaður að hreyfa sig aftur. Hann er þó ekki alveg sloppinn en líklega er um tognun að ræða. Ökklinn er frekar bólginn og á enn eftir að mynda hann þegar að bólgan hjaðnar til að sjá hvort einhver skaði sé á liðböndum Antons. Ljóst er að hann verður ekki næstum því eins lengi frá og fyrst var talið sem eru frábærar fréttir fyrir Valsmenn. Óhappið átti sér stað degi áður en Valsmenn fór til Búdapest í Ungverjalandi til að fagna Íslandsmeistaratitlinum en Anton missti af ferðinni þar sem hann var einn heima í gifsi. Anton Ari var besti markvörður Pepsi-deildarinnar í sumar en hann fékk aðeins á sig 20 mörk í 22 leikjum og hélt sjö sinnum hreinu. Þessi 23 ára gamli Mosfellingur kom til Vals frá Aftureldingu árið 2015 og hirti aðalmarkvarðarstöðuna af Ingvari Þór Kale eftir tvær umferðir á síðustu leiktíð.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Íslenski boltinn Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Enski boltinn Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Fótbolti Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Handbolti Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Fótbolti Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik Fótbolti Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Handbolti „Ég hafði trú á því að þær gætu gert þetta betur“ Fótbolti Fleiri fréttir ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Valur og Breiðablik í góðum gír í Lengjubikar kvenna Sjá meira