Stuttmyndin var sýnd á undan Pixar-teiknimyndinni Coco en Mashable segir þessa fyrirskipun Disney taka gildi 8. desember næstkomandi.
Disney beindi því til kvikmyndahúsa að nýta tímann sem losnar þegar sýningum á stuttmyndinni verður hætt til að bæta við sýningum á Coco.
Disney á Pixar sem framleiðir Coco og stuttmyndina um Ólaf snjókarl en stuttmyndin hefur fengið afleitar viðtökur, að því er fram kemur á vef Mashable. Þar segir að myndin þyki of löng, eða 22 mínútur talsins. Á undan stuttmyndinni eru sýndar stiklur úr væntanlegum myndum sem verður þess valdandi að sýningar á Coco hafa ekki hafist fyrr en fjörutíu mínútur eru liðnar frá auglýstum sýningartíma, sem gerir ungum áhorfendum erfitt fyrir.
Hefð er fyrir því að sýna stuttmyndir á undan Pixar-myndum í kvikmyndahúsum, en þær hafa jafnan verið um tíu mínútur að lengd. Þær stuttmyndir hafa verið á vegum Pixar, en stuttmyndin um Ólaf snjókarl á vegum Disney.