„Auðvitað verð ég að viðurkenna að fyrirmyndin kemur að utan þar sem konur sýndu samstöðu með áberandi hætti á Golden Globe,“ segir Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA.
Athygli vakti þegar mikill meirihluti gesta var svartklæddur á Golden Globe verðlaunahátíðinni í byrjun janúar. Þann 31 janúar fer fram viðurkenningarhátíð FKA og vill félagið tileinka daginn MeToo.
„Við stöndum í byltingu sem kemur okkur öllum við, segir Rakel.
„Það konur klæðist svörtu, allar sem ein, bæði sýnir stuðninginn sem við konurnar sýnum hvor annarri og byltingunni sjálfri, en líka kannski undirstrikar gagnvart samfélaginu hvað ákallið er í raun mikið og alvarlegt um að hér verði í kjölfar MeToo byltingarinnar einhver varanleg breyting. Me Too er ekki bóla.“
Yfirvöld og hreyfiöfl verði að grípa boltann
Rakel segir að síðustu vikur hafi samfélagið í heild verið að móttaka upplýsingar og átta sig á því hversu víðfeðm kynferðisleg áreitni og valdbeiting er og hefur verið um ára bil.

Aðspurð um hvað taki við eftir að konur hafi stigið fram með sögur af kynferðislegri áreitni og kynferðisofbeldi segir Rakel að hagsmunaöfl, vinnuveitendur og stjórnvöld verði að grípa boltann á lofti með hugmyndir um hvernig megi uppræta áreitni og ofbeldi.
„Síðan þurfum við að lista upp nýjar leikreglur í rauninni og gera þær skiljanlegar öllum þannig að allt sem heitir kynferðisleg áreitni eða valdbeiting gagnvart öðru kyninu sé bara eitthvað sem heyri sögunni til.“
MeToo rætt á öllum stjórnarfundum
Hún segir stjórn FKA taka MeToo mjög alvarlega og að þar verði MeToo byltingin fastur liður á dagskrá stjórnarfunda út árið.
„Svo við séum að halda okkur við, alltaf að velta upp þeirri spurningu hvort samfélagið sé að fylgja eftir byltingunni, er verið að gera nóg? vantar eitthvað upp á?“ segir Rakel.
„Á þessu ári 2018 þá má segja að þessi dagur, 31. janúar, er fyrsti liðurinn í því að við sem þetta fjölmenna hreyfiafl munum sýna að við ætlum að fylgja MeToo eftir af fullu afli.“