Innlent

Tveir „galdra­menn“ í haldi

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Hildur Bolladóttir og Bolli Ófeigsson eigendur  Ófeigs gullsmiðju lentu í þjófagengi í gær sem þau lýsa eins og galdramönnum. Lögregla hefur handtekið tvo í tengslum við málið.
Hildur Bolladóttir og Bolli Ófeigsson eigendur Ófeigs gullsmiðju lentu í þjófagengi í gær sem þau lýsa eins og galdramönnum. Lögregla hefur handtekið tvo í tengslum við málið. Vísir

Þaulskipulagt erlent þjófagengi lét greipar sópa í skartgripabúð á Skólavörustíg í gær. Eigendur lýsa þjófunum eins og galdramönnum. Lögregla hefur handtekið tvo úr genginu og náð einhverju af þýfinu. Þá náðist myndband af bíræfnum vasaþjófum í Haukadal í gær.

Eigandi Gullsmiðju og listmunahúss Ófeigs á Skólavörðustíg var við það að loka í gær þegar fólk sem virtist vera erlendir ferðamenn fór að streyma inn. Hluti hópsins hafði það hlutverk að versla  og trufla eigandann meðan aðrir hnupluðu skartgripum fyrir hundruðum þúsunda.Þjófnaðurinn náðist á eftirlitsmyndavélar. 

„Rosalega óþægilegt“

„Þau komu á stuttum tíma í hollum inn í búðina og voru átta  þegar mest var. Ein þeirra bað mig um að sýna sér hring. Ég opnaði hólfið hér í augnablik og þá nýtti annar tækifærið og teygði sig inn fyrir glerið og tókst að ná sér í silfurarmband. Þetta er rosalega óþægilegt,“ segir Hildur Bolladóttir verslunareigandi sem stóð vaktina í gær.

Á meðan Hildur afgreiddi svo eitt parið notaði annar einstaklingur úr genginu tækifæri til að stela sýningarbakka með skartgripum úr glugganum.

Sá þjófur missti tvo hringi á leið út en var svo bíræfinn að koma aftur til baka og sækja annan þeirra.

„Við sáum í eftirlitsmyndavélunum að hann kom aftur inn í búðina til að sækja annan hringinn,“ segir Hildur.

Hildur gerði sér grein fyrir að hún hefði verið rænd skömmu eftir að þjófarnir voru á brott og þegar var haft  samband við lögreglu. Þá tilkynnti Bolli  Ófeigsson gullsmiður og sonur hennar um þjófnaðinn á Facebook. Lögregla hafði snör handtök.

„Ég held að það sé búið að finna megnið af þessu og handtaka tvo. Ég er mjög ánægð með það og mikið létt,“ segir Hildur.

Eins og galdramenn

Bolli Ófeigsson gullsmiðlur segir ótrúlegt að sjá þjófanna athafna sig á eftirlitsmyndböndunum verslunarinnar.

„Þjófarnir eru eins og galdramenn,“ segir hann.

Hann segir verslunarmenn á Skólavörðustígnum hafa þó nokkrum sinnum lent í sambærilegum þjófagengjum.

„Svipaðir hópar hafa verið hér áður og ryksugað úr verslunum. Þetta eru oft algjörir sjónhverfingamenn,“ segir hann.

Hann segir að eitt einkenni þjófanna umfram annað. 

„Fólkið er yfirleitt lélegt í ensku,“ segir hann. 

Vasaþjófar á vinsælum ferðamannastöðum

Það var þó ekki bara á Skólavörðustígnum sem þjófagengi athöfnuðu sig í gær því vasaþjófur læddist í vasa grandalauss ferðamanns við Strokk í Haukadal.  Búðarkona í Reykjavík bar kennsl á þjófinn þegar hann reyndi að versla með stolnum greiðslukortum í gær. Lögreglu var gert viðvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×