Það er ekkert grín að halda Ólympíuleika í dag og kostnaður við þetta stærsta íþróttamót í heiminum hleypur nú á þúsund milljörðum íslenskra króna. Það versta er að kostnaðurinn heldur alltaf áfram að hækka þrátt fyrir aðgerðir til að koma í veg fyrir það.
Svoleiðis var þetta í kringum Ólympíuleikana í Ríó 2016 en sú saga mun líka endurtaka sig í kringum næstu sumarleika sem fara fram í júlí og ágúst 2020 í Tókýó í Japan.
Skipuleggjendur Ólympíuleikanna sem fara fram eftir rúm tvö ár greindu frá því á dögunum að verkefnið kalli á miklu meiri peninga. Washington Post segir frá.
Í lok desember talaði skipulagsnefnd leikanna að kostnaðurinn yrði um 12,4 milljarða dollara og það var strax mikil hækkun. Aðeins nokkrum vikum síðar var aftur á móti haldinn annar blaðamannafundur og reikningurinn var þá orðinn talsvert hærri.
Á fundinum kom fram að leikarnir þurfi 7,5 milljarða dollara til viðbótar sem þýðir að heildarkostnaðurinn er nú kominn upp í meira en tuttugu milljarða dollara. Tuttugu milljarðar dollara eru meira en tvö þúsund milljarðar íslenskra króna.
Þetta er þreföldun á upphaflegri fjárhagsáætluninni sem var gefinn út þegar Tókýó var úthlutað Ólympíuleikunum árið 2013.
Það kom líka fram á fundinum hvernig skiptingin á reikningnum verður. Borgaryfirvöld í Tókýó munu leggja til 13 milljarða dollara og 1,4 milljaður dollara kemur frá japönskum stjórnvöldum. Restina, um 5,5 milljarða dollara, þarf skipulagsnefnd leikanna að safna frá einkaaðilum.
Þetta verður í annað skiptið sem sumarólympíuleikarnir fara fram í Japan en þeir fóru líka fram í Tókýó 1964.
Ólympíuleikarnir í Tókýó verða þrisvar sinnum dýrari en reiknað var með
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið





Enskir fjölmiðlar segja Chelsea hafa brotið reglur UEFA
Enski boltinn

Bræður berjast og fjölskyldumeðlimir velja á milli
Íslenski boltinn

Blikar mættu með málningarpenslana í garðinn hjá Gylfa
Íslenski boltinn

„Sorgardagur fyrir Manchester City“
Enski boltinn

