„Takk fyrir Trumplýsingarnar“ Ívar Halldórsson skrifar 6. febrúar 2018 16:01 Kæru fagmenn - þið sem eigið eftirfarandi hrós skilið, Takk fyrir allar upplýsingarnar um Trump sem berast til okkar daglega í gegnum hinar ýmsu og áreiðanlegu upplýsingaveitur þjóðfélagsins - miðlum sem þið notið óspart og markvisst til að ná til okkar hinna í samfélaginu. Með ykkar hjálp erum við öll loksins búin að ná þessu! Skilaboðin eru skýr. Við eigum sem þjóð að fyrirlíta forsetann - og það er víst mikilvægt að við stöndum þétt saman í okkar afstöðu til mannsins sem við vitum nú að ætti auðvitað að vera löngu kominn í spennitreyju! Við skiljum núna alveg hvernig leikurinn virkar; þessi samfélagsleikur sem við viljum auðvitað öll taka þátt í. Við eigum að finna eins marga galla á Trump og við getum um leið og við hneykslumst huggulega á honum til að mastera leikinn. Það er mikilvægt að missa ekki út úr sér neitt jákvætt um hann ætli maður að halda andliti. Hvað með fjölskylduborðspil fyrir næstu jól? Við gætum bara kallað það: „Svívirtu Trump til að vinna!“ Maður tekur líka alveg eftir hversu gott lag þið hafið á því að finna kjánalegustu myndirnar af forsetanum til að birta á frétta- og samfélagsmiðlum; auðvitað til að undirstrika hversu galinn hann náttúrulega er. Maður sér ykkur alveg fyrir sér við tölvurnar; hlæjandi að heimskulegum svipnum á Trump á mynd dagsins, sem þið getið ekki annað en deilt með okkur. Maður er samt alveg hissa á því að engum af ykkur með viðskiptavit hafi dottið í hug að framleiða „Trumpólín“, og selt þau fyrir síðasta sumar. Það hefðu allir keypt sér svoleiðis! Hvaða heilvita íslenskum manni dreymir ekki um að hoppa á heimskulegum svipnum á Trump?! Hugsið ykkur alla peningana sem hægt væri að græða á því að láta fólk borga fyrir að hoppa á andliti geðsjúklingsins í Hvíta húsinu! Fín og skemmtileg leið til að opna augu barna okkar fyrir því hversu litla virðingu Trump á skilið frá viti bornu fólki - og svo er þetta góð hreyfing fyrir þau í leiðinni! Já, og þvílík snilld að bjóða bara andstæðingum Trump í viðtöl! Það er svo gefandi að fylgjast með viðmælendunum hneykslast á honum, og keppast um að finna galla á Trump. Þið hafið loks náð að gera þekkt samfélagsvandamál eins og einelti, baktal og opinbera niðurlægingu á persónum faglegri og fjölskylduvænni. Þið setjið markið hátt fyrir næstu kynslóð sem mun vonandi feta í fótspor ykkar og taka ykkar fagmennsku í fjölhliða umræðu til fyrirmyndar. Það er svo skemmtilegt hvernig við náum öll núna að vera sammála um að forsetaræfillinn átti aldrei að vera svarinn í embættið! Fólk er loksins með ykkar aðstoð, búið að átta sig á að um rúmur helmingur kjósenda í Bandaríkjunum eru kolklikkaðir og hugsanlega hælismatur! Það væri kannski ráð að sniðganga allar vörur sem framleiddar eru af fólki sem kaus Trump. Bara hugmynd. Mig langar líka til að þakka fyrir það hversu frábærlega þið matreiðið upplýsingarnar ofan í okkur. Þið gerið þetta einhvern veginn þannig að maður þarf ekki að hafa fyrir því að skoða málin frá mismunandi sjónarhornum lengur. Maður þarf ekki lengur að vega og meta alls kyns upplýsingar til að komast að persónulegri niðurstöðu; mynda sér skoðun; fylgja einhverri eigin tilfinningu eða innri sannfæringu. Ykkur tekst einhvern veginn að gera upp okkar hug fyrir okkur og ákveða hvað okkur sjálfum í raun finnst um Trump. Hvílíkur orku- og tímasparnaður að þurfa ekki nota eigin heila til að meta og greina bandaríska pólitík! Við vitum öll að það er óhætt að treysta því að þið hafið með ykkar hlutlausu rannsóknarvinnu og faglegu nálgun fundið hinn ótvíræða sannleika um Trump og uppgötvað hans sanna og ómannúðlega innræti. Ef einhver veit hvað honum í raun gengur til, þá eruð það þið. Maður er sem betur fer búinn að átta sig á því núna að maður er auðvitað heldur ekki maður með mönnum nema maður lumi á einhverjum góðum „Trump-bröndurum“. Ég ætla sko að reyna að finna nokkra góða á netinu í kvöld til að slá í gegn á kaffistofunni á morgun. Maður verður svo líka að kaupa þessa bók um Trump sem dregur fram allt það fáránlegasta í fari þessa manns - makalaust mistakasafn skilst mér! Það virðist engin endi vera á vanköntum þessa manns! Já, það er sko endalaust hægt að gera grín að forsetaræflinum. Loksins getur maður með góðri samvisku gert gróft grín að einhverri manneskju sem á það raunverulega skilið - og án þess að móðga viðstadda! Loksins er búið að finna persónu sem ER óvéfengjanlega fullgildur hálfviti! Mér finnst bara líka svo frábært þegar við sem siðmenntað þjóðfélag náum að mynda samstöðu um eitthvað virðingarvert eins og að hneykslast öll sem eitt á annarri manneskju. Þetta tengir sálir okkar saman. Það er eitthvað svo stórkostlegt við það þegar heilt samfélag af mannelskandi fólki eins og okkur, stendur saman um að fyrirlíta núverandi forseta Bandaríkjanna! Þetta er eitthvað svo mikið “win-win” fyrir okkur öll og við náum auk þess að senda svo skýr skilaboð til yngri kynslóðarinnar okkar um það hvernig fólk er fullkomlega í lagi að fyrirlíta! Auðvitað eru alltaf einhverjir þöngulhausar sem reyna að færa manni hlutlausar og faglegar fréttir af forsetanum. En með ykkar hjálp höfum við lært að sneiða fram hjá þeim og meðhöndla allar slíkar upplýsingar sem endemis þvælu. Allar jákvæðar umfjallanir um Hr. Prump eru auðvitað vandræðalegt röfl ranghugmyndamanna sem ekki er nokkurt mark takandi á. Þið hafið einnig opnað augu mín fyrir því hversu margir af mínum vinir eru fávitar, þ.e. þeir sem vilja meina að hann hafi komið einhverju góðu til leiðar. En auðvitað gætið þið þess að skilaboðin sem okkur berast gegnum upplýsingaveitur séu ekki send í meðvirkni með einhverjum meintum meirihluta. Það er svo gott að geta verið viss um að skoðanir ykkar skyggja aldrei á sannleikann um Trump. Við vorum kannski ekki búin að mynda okkur neina sérstaka skoðun á Trump áður en þið byrjuðuð að deila sannleikanum um hann með okkur. En nú, með ykkar aðstoð og innsæi, áttum við okkur á því, að það er nauðsynlegt að fyrirlíta forseta Bandaríkjanna. Kærar þakkir fyrir að hafa vit fyrir okkur! Kærkomnar fullyrðingar ykkar eru okkur sannkallað leiðarljós í fyrirmyndar framkomu og í samskiptum okkar við siðmenntað fólk. Hér á landi mun auðvitað aldrei fenna yfir fagmennskuna þegar kemur að upplýsingagjöf í umdeildum málum þrátt fyrir pólitískan þrýsting þeirra sem litaðir eru af rétttrúnaðarstraumum samfélagsins. Nei, hér á Íslandi erum við sem betur fer ávallt vel upplýst....er það ekki? Takk fyrir Trumplýsingarnar kæru fagmenn - þið vitið hverjir þið eruð. Megi náungakærleikur og virðing ávallt ríkja í hjörtum okkar allra. Ívar Halldórsson Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ívar Halldórsson Mest lesið Er kominn tími á Útlendingafrí? Marion Poilvez Skoðun 1. maí er líka fyrir fatlað fólk! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Janus og jakkalakkarnir Óskar Guðmundsson Skoðun Verkalýðshreyfingin á næsta leik í Evrópuumræðunni Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Immigrant Women: Essential Workers, Rising Voices on Labor Day Maru Alemán Skoðun Á milli steins og sleggju Heinemann Ólafur Stephensen Skoðun Hvað ert þú að gera? Eiður Welding Skoðun Samtalið um dauðann veldur okkur óöryggi Ingrid Kuhlman Skoðun Allir eiga rétt á virku lífi — líka fatlað fólk Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Börnin á Gasa Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sigursaga Evrópu í 21 ár Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Verkalýðshreyfingin, Dagbjört og ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Börnin á Gasa Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Myndir þú ráða fatlað fólk í vinnu? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvað ert þú að gera? Eiður Welding skrifar Skoðun Rauðir sokkar á 1. maí Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun 1. maí er líka fyrir fatlað fólk! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðshreyfingin á næsta leik í Evrópuumræðunni Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Á milli steins og sleggju Heinemann Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Heiðrum íslenska hestinn Berglind Margo Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Allir eiga rétt á virku lífi — líka fatlað fólk Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er kominn tími á Útlendingafrí? Marion Poilvez skrifar Skoðun Janus og jakkalakkarnir Óskar Guðmundsson skrifar Skoðun Jafnréttisbaráttan er brýnni en nokkru sinni fyrr Kolbrún Halldórsdóttir,Sunna Kristín Símonardóttir skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að vera þegar þú verður stór? Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Samtalið um dauðann veldur okkur óöryggi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Sköpum störf við hæfi! Unnur Hrefna Jóhannsóttir skrifar Skoðun Immigrant Women: Essential Workers, Rising Voices on Labor Day Maru Alemán skrifar Skoðun Tikkað í skipulagsboxin Samúel Torfi Pétursson skrifar Skoðun Það sem er ósagt varðandi vinnubrögð hjá Háskólanum á Akureyri Þóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjúklingur settur í fangaklefa Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjármálaráðherra, Daða Más Kristóferssonar Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Ég kalla hann Isildur; mentorinn minn er gervigreind Björgmundur Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er „furry“ annars? Jóhanna Jódís Antonsdóttir skrifar Skoðun Jafnaðarmennskan og verkalýðsbaráttan Sigfús Ómar Höskuldsson skrifar Skoðun Hljóð og mynd íslenskra varna Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Kveðjur úr Grafarvogi til þeirra sem kasta steinum úr glerhúsi Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Leiðsöguhundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju Þorkell J. Steindal skrifar Skoðun Fimmtíu ár frá lokum Víetnamstríðsins Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Að undirbúa börnin okkar fyrir heim sem er að hverfa Halldóra Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Jafnréttisbaráttan er brýnni en nokkru sinni fyrr Kolbrún Halldórsdóttir,Sunna Kristín Símonardóttir skrifar
Skoðun Það sem er ósagt varðandi vinnubrögð hjá Háskólanum á Akureyri Þóra Sigurðardóttir skrifar