Hæst setti embættismaðurinn sendur suður Stefán Ó. Jónsson skrifar 5. febrúar 2018 07:28 Kim Yong-nam er forseti norður-kóreska þingsins. Vísir/AFP
Æðsti ráðamaður Norður-Kóreu, að leiðtoganum sjálfum undanskildum mun heimsækja Suður-Kóreu í þessari viku þegar Vetrarólympíuleikarnir hefjast þar í landi. Hinn níræði Kim Yong-nam er forseti þingsins í Norður-Kóreu og hefur verið háttsettur í stjórnkerfinu þar í landi alla tíð, eða frá því landið varð til í Kóreustríðinu á sjötta áratug síðustu aldar. Um þriggja daga heimsókn er að ræða og mun Yong-nam fara fyrir 22 manna sendinefnd ríkis síns. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem þessi fulltrúi hins einangraða ríkis ferðast út fyrir hina víggirtu landsteina Norður-Kóreu að sögn breska ríkisútvarpsins. Hann fór til að mynda til Írans í fyrra þegar hann þáði heimboð Hassan Rouhani, forseta landsins, er hann fagnaði síðar innsetningu sinni. Þá var hann jafnframt viðstaddur þegar Vetararólympíuleikarnir í Sochi voru settir árið 2014. Yong-nam er langháttsettasti stjórnmálamaður Norður-Kóreu sem heimsækir grannana í suðri en löndin tvö eru tæknilega enn í stríði eftir að samið var um vopnahlé árið 1953. Þíða hefur verið í samskiptum ríkjanna að undanförnu og munu þau ganga inn á Ólympíuleikvanginn undir sameiginlegum fána.
Norður-Kórea Mest lesið Myndir af fjölskyldunni til sölu í fjóra tíma eftir þyrluslysið Erlent Lögreglan komin á vettvang þegar í ljós kom að bíllinn var rétt hjá Innlent Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Innlent Telja mögulegt að dularfullar bækur frá miðöldum tengist Íslandi Erlent Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Innlent Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Innlent Ráku yfirmann herstöðvarinnar á Grænlandi eftir heimsókn Vance Erlent NEL telur orðfæri lögreglumanna ekki tilefni til endurupptöku Innlent Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Erlent Ætla að hætta að safna gögnum um losun gróðurhúsalofttegunda Erlent Fleiri fréttir Ráku yfirmann herstöðvarinnar á Grænlandi eftir heimsókn Vance Ætla að hætta að safna gögnum um losun gróðurhúsalofttegunda Myndir af fjölskyldunni til sölu í fjóra tíma eftir þyrluslysið Telja mögulegt að dularfullar bækur frá miðöldum tengist Íslandi Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi Sjá meira