Bretar eru fullvissir um að Rússar beri ábyrgð á árásinni en í gær greindi forsætisráðherra Breta frá því að 23 rússneskir erindrekar yrðu reknir úr landinu. Í dag sögðust rússnesk yfirvöld ætla að svara í sömu mynt, enda eigi ásakanirnar ekki við rök að styðjast. „Rússland tengist á engan hátt atburðunum í Salisbury 4. mars. Í öðru lagi buðum við strax fram aðstoð okkar við rannsókn Breta á þessu máli en tilboði okkar var hafnað,“ segir Anton V. Vasiliev, sendiherra Rússlands á Íslandi, í samtali við Stöð 2.
Bretar og stærstu bandamenn þeirra, Frakkar, Þjóðverjar og Bandaríkjamenn, sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í dag þar sem segir að ekki komi annað til greina en að Rússar beri ábyrgð á árásinni en taugaeitrið sem um ræðir var þróað af Rússum í seinna stríði.
„Þetta er einkennandi verknaður af hálfu rússneska ríkisins sem notaði vísvitandi Novichok-taugaeitur þróað af Rússum til að refsa rússneskum liðhlaupa, eins og þeir líta á það, í aðdragand kosninga Vladimírs Pútíns,“ sagði Boris Johnson, utanríkisráðherra Bretlands, í dag en forsetakosningar fara fram í Rússlandi á sunnudaginn.
Óttast ekki að málið hafi áhrif á sambandið við Ísland
Þessu er sendiherrann ósammála. „Við teljum að þessi nýlega stuðningsbylgja við ásakanir Breta í garð Rússa sé einfaldlega fáránleg því hún byggist ekki á neinum staðreyndum,“ segir Vasiliev.Sem stendur liggja fyrrum njósnarinn og dóttir hans þungt haldin á sjúkrahúsi eftir árásina en Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, heimsótti Salisbury í dag. „Ég vona að þegar Skripal nær sér geti hann kannski gefið okkur nýjar, áhugaverðar upplýsingar sem geti varpað ljósi á þetta mál,“ segir Vasiliev.
Aðspurður kveðst hann ekki óttast að málið hafi áhrif á samband Íslendinga og Rússa. „Ég vona að þetta hafi engin áhrif á samband okkar við Ísland sem er mjög gott þrátt fyrir vandamál sem eru til staðar,“ segir Vasiliev, en í ár eru 75 ár síðan formleg utanríkissamskipti ríkjanna hófust. Þá kveðst hann hlakka til að fylgjast með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem fram fer í Rússlandi í sumar.