Búast við milljónum tjónatilkynninga vegna stríðsins í Úkraínu Áætlað er að tjón Úkraínu vegna innrásarstríðs Rússa í Úkraínu nemi allt að átta hundruð milljörðum dollara. Íslendingur sem leiðir tjónaskrá Evrópuráðsins vegna Úkraínu áætlar að á bilinu fimm til átta milljónir tjónsbeiðna gætu borist frá fólki sem meðal annars hefur misst heimili sín eða ástvini eða sætt pyndingum og kynferðislegu ofbeldi í stríðinu. 21.3.2025 16:02
„Þetta er ekki bara okkar stríð“ Umheimurinn þarf að sjá eyðilegginguna og horfast í augu við þær hörmungar sem blasa við vegna innrásarstríðs Rússa í Úkraínu. Þetta segir varaborgarstjóri í Poltava þar sem íbúar hafa ekki farið varhluta af árásum Rússa. Íbúar glíma daglega við afleiðingar mannskæðra árása sem gerðar hafa verið á íbúabyggð í borginni síðan stríðið hófst. 19.3.2025 06:47
Tugir dróna á sveimi og læti í loftinu yfir Kænugarði Það dylst engum sem staddir eru í Kænugarði að það er enn stríð í Úkraínu. Í kvöld hafa loftvarnarviðvaranir vart stoppað og heyra hefur mátt dróna á sveimi yfir borginni og glymjandi hvelli þegar þeir eru skotnir niður. Þegar þetta er skrifað er liðin dágóð stund síðan síðast heyrðust sprengingar úr lofti sem virtust ekki svo ýkja langt frá miðborginni þar sem hópur íslenskra blaðamanna dvelur nú. 18.3.2025 23:31
Íslenskir kafbátar vakta neðansjávarinnviði og leita að sprengjum Eftirspurn hefur rokið upp hjá íslensku fyrirtæki sem framleiðir sjálfstýrða kafbáta undanfarinn misseri, sem framkvæmdastjóri segir að meðal annars megi rekja til vendinga á alþjóðavettvangi. Tæknin nýtist í margvíslegum tilgangi, meðal annars í vísindarannsóknir, vöktun mikilvægra innviða og við sprengjuleit. 12.3.2025 20:02
„Þjóðin er klofin varðandi hvers konar sjálfstæði hún vill“ Stjórnarandstöðuflokkarnir unnu stórsigur í þingkosningum á Grænlandi í gær. Demókratar þrefölduðu fylgi sitt frá síðustu kosningum en þetta er í fyrsta sinn sem hægri flokkur vinnur kosningar á Grænlandi. Úrslitin eru til marks um klofning meðal grænlensku þjóðarinnar að sögn Vilborgar Ásu Guðjónsdóttur, alþjóðastjórnmálafræðings og doktorsnema. 12.3.2025 16:50
Sögulegar kosningar í skugga ásælni Trumps Á morgun ganga Grænlendingar til þingkosninga sem verða, að sögn formanns landstjórnarinnar, þær örlagaríkustu síðari tíma. Grænlendingar hafa setið undir stöðugum hótunum um innlimun inn í Bandaríkin og spurningin um sjálfstæði brennur á allra vörum. 10.3.2025 22:30
Heiða liggur enn undir feldi Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún ætli að halda áfram sem formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga samhliða starfi borgarstjóra. Laun Heiðu Bjargar hafa vakið mikil viðbrögð, en um helgina kom fram í fréttum að laun fyrir formennsku hjá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga hafi hækkað um fimmtíu prósent frá árinu 2023. 10.3.2025 12:15
Þrjú banaslys á fáum dögum, framtíð Sunnutorgs og hundur í hjólastól Þrír hafa látið lífið í umferðarslysum á síðustu fjórum dögum, þar á meðal barn á öðru aldursári. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við aðstoðaryfirlögregluþjó á Austurlandi sem segir aðdraganda banaslyss sem varð í Berufirði í dag enn til rannsóknar. 9.3.2025 18:25
Leiðrétt laun formanns, átök í Sýrlandi og skattadagurinn Laun formanns sambands íslenskra sveitarfélaga hafa ekki hækkað um 170 prósent á tveimur árum, líkt og kom fram í fjölmiðlum í gær, heldur hækkuðu þau einungis um tæp fimmtíu prósent. Fjallað verður nánar um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag en sambandið sendi frá sér rangar upplýsingar um launin í síðustu viku. 9.3.2025 11:46
Forseti Suður-Kóreu leystur úr haldi Yoon Suk Yeol, forseti Suður-Kóreu sem var handtekinn í lok janúar, var leystur úr haldi í dag. Forsetinn var settur af og ákærður eftir að hann reyndi að koma á herlögum í landinu í desember. Hann á þó enn dómsmál yfir höfði sér en ákvörðun um varðhald yfir honum var felld úr gildi á lagatæknilegum grundvelli. 8.3.2025 19:18