Söguleg vera strákanna okkar meðal tuttugu bestu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2018 09:35 Íslensku landsliðsstrákarnir á góðri stundu. Vísir/Getty
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta heldur sæti sínu á styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins en mars-listinn var gefinn út í morgun. Íslenska liðið er í átjánda sæti og hefur aldrei verið ofar á FIFA-listanum. Íslenska landsliðið hækkaði sig um tvö sæti þegar febrúarlistinn var birtur og það breyttist ekkert á milli mánaða enda engir landsleikir spilaðir á þessum tíma. Það eru líka mjög litlar breytingar á efstu liðum listans en Pólland er eina landsliðið sem hækkar sig meðal þeirra tuttugu efstu. Pólland fer upp um eitt sæti og situr við hlið Spánar í sjötta sætinu. Svíar eru áfram einu sæti fyrir neðan Íslands en Danir eru í tólfta sæti og efstir Norðurlandaþjóða. Næst á undan Íslandi er landslið Mexíkó en þjóðirnar mætast einmitt í vináttulandsleik í Bandaríkjunum seinna í þessum mánuði. Ísland mætir líka Perú í Bandaríkjaferðinni en Perúmenn eru í ellefta sæti listans. Takist strákunum okkar vel upp í þessum tveimur leikjum þá gæti íslenska liðið því hækkað sig ennfrekar á listanum. Með því að halda sæti sínu meðal tuttugu bestu knattspyrnulandsliða heims þá setur íslenska landsliðið nýtt Íslandsmet. Ísland hefur nefnilega aldrei áður verið áður í þrjá mánuði samfellt meðal tuttugu efstu knattspyrnulandsliða heims en liðið var í 20. sæti í janúar og í 18. sæti í febrúar. Íslenska landsliðið var mest áður inn á topp tuttugu í tvo mánuði í röð frá júlí (19. sæti) til ágúst (20. sæti) í fyrra.
Fótbolti HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Sjá meira