Sögusagnir um að Kolbeinn fari með íslenska landsliðinu til Bandaríkjanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2018 11:00 Kolbeinn Sigþórsson. Vísir/Getty
Kolbeinn Sigþórsson spilaði meira en klukkutíma með varaliði Nantes um helgina og er greinilega á réttri leið í endurkomu sinni. Kolbeinn hefur talað sjálfur um draum sinn um að vera með Íslandi á HM í Rússlandi í sumar og fyrsta skrefið í þá átt gæti komið í næsta verkefni landsliðsins. Kolbeinn hefur ekki spilað með íslenska landsliðinu síðan í leik á móti Frakklandi í átta liða úrslitum Evrópumótsins sumarið 2016. Hjörvar Hafliðason sagði frá því í Brennslunni á FM957 í morgun að það séu sögusagnir um að Kolbeinn verði með í landsliðshóp Íslands sem fer til Bandaríkjanna seinna í þessum mánuði og spilar vináttuleiki við Mexíkó og Perú. Leikirnir fara fram 23. og 27. mars en Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, tilkynnir hópinn sinn á föstudaginn.Í umsögn um varaliðsleikinn hjá Nantes á vefsíðunni planete-fcnantes.com kemur fram að Kolbeinn hafi átt þátt í öðru marki Nantes en liðið vann þar 2-1 sigur á Changé. Blaðamaður Planete FC Nantes sagði þó í umsögn sinni að Kolbeinni hafi augljóslega verið ryðgaður sem hafi verið skiljanlegt enda næstum tvö ár síðan hann lék síðast með aðalliði félagsins. Vináttuleikirnir í Bandaríkjunum verða síðustu tveir leikir íslenska landsliðsins áður en Heimir velur lokahópinn sinn á HM. Þetta er því síðasta tækifæri leikmanna til að spila sig inn í HM-hópinn í leik með landsliðinu.
Fótbolti HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Sjá meira