Skoðun

Páskar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Páskar eru trúarhátíð kristinna manna með hinum sterka boðskap um fórnfýsi og sigur lífsins yfir dauðanum. Ekki taka allir eftir þessum fallega boðskap og sumir gefa reyndar afar lítið fyrir hann. Á mörgum bæjum telst einfaldlega ekki sérlega fínt að flagga trú. Hún þykir jafnvel hrein tímaskekkja í nútímasamfélagi og því eru öfl sem vilja draga úr vægi hennar og telja sig með því vera að gera mikið gagn. Þessum öflum hefur orðið nokkuð ágengt, en eiga þó langt í land með að takast það ætlunarverk sitt að afkristna þjóðina. Það auðveldar þessum hópi reyndar verkið að nútímamaðurinn er yfirleitt á þönum, stöðugt að flýta sér og gefur sér alla jafna lítinn tíma til íhugunar. Hátíð eins og páskar verða í huga hans að kærkominni röð frídaga, þegar þeir ættu að vera svo miklu meira en það. Þarna er nútímamaðurinn, eins og stundum áður, fastur á villigötum neysluhyggjunnar. Hann er of upptekinn af þægindum þegar hann mætti gjarnan vera meira brennandi í andanum.

Í umhverfi eins og þessu á þjóðkirkjan að mörgu leyti erfitt uppdráttar. Hún nýtur ekki sömu virðingar og áður og getur sumpart sjálfri sér um kennt. Of margir kirkjunnar þjónar hafa reynst mun breyskari en góðu hófi gegnir. Þar sýnir sig að mun auðveldara er að vera talsmaður boðskapar en að breyta eftir honum. Kristin trú boðar kærleika, umburðarlyndi og fórnfýsi og það skipir öllu máli að prestar landsins breyti samkvæmt því. Það er siðferðileg skylda þeirra að starfa í þágu kærleikans og það gera þeir blessunarlega flestir.

Þótt þjóðkirkjan eigi undir högg að sækja og úrsögnum úr henni fjölgi þá standa kirkjur landsins samt ekki auðar, síst á stórhátíðum eins og páskum. Páskaboðskapurinn kemst rækilega til skila í predikunum, upplestri og tónlist, þar er nánast eins og kirkjugestir séu umfaðmaðir. Einhverjir myndu kannski ætla sem svo að einungis þarna ætti páskaboðskapurinn heima. Hann fái ekki ýkja mikla athygli annars staðar. En svo er alls ekki.

Jafn ágætt starf og prestar vinna þegar þeir boða kærleiksboðskapinn þá eru aðrir sem hafa afrekað enn meir. Það eru listamennirnir sem skapað hafa ódauðleg verk með tilvísunum í sögur Biblíunnar. Þeir sem vilja geta auðveldlega leitt hjá sér orð og predikanir prestanna. Ekkert fær hins vegar unnið á þeim stórbrotnu listaverkum sem vísa til kristni og kristins boðskapar. Passíusálmar Hallgríms Péturssonar hafa verið lesnir í útvarpi svo lengi sem elstu menn muna. Jafn ólík verk og Mattheusarpassía Bachs og Jesus Christ Superstar eru flutt á þessum tíma, ásamt fleiri gimsteinum tón­listar­sögunnar. Heimurinn á ódauðleg verk eftir meistara myndlistarsögunnar af Kristi á krossinum og upprisu hans. Enn verður sú saga skáldum að yrkisefni og kvikmyndagerðarmenn gera henni skil á hvíta tjaldinu.

Ef við höfum í huga öll þau listaverk sem mannsandinn hefur skapað vegna áhrifa frá sögunni um Krist, krossfestingu hans og upprisu þá hlýtur okkur um leið að verða ljóst að páskaboðskapurinn mun aldrei gleymast. Hann á ætíð erindi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×