„Þetta var þannig að RÚV tilkynnti þeir þyrftu að bakka út úr verkefninu vegna þess að undirverktaki þeirra sem ætluðu að sjá um verkefnið hætti skyndilega við. Þetta varð til þess að keðjuverkandi áhrif urðu til, sem gátu aðeins endað illa,“ sagði Davíð Snær Jónsson formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema í samtali við DV. Hann kennir þó RÚV ekki alfarið um að keppninni hafi verið aflýst.
Sindri Ástmarsson hjá K2 Events sem sem var framkvæmdaaðili keppninnar í ár segir að þetta sé ekki RÚV að kenna þó að það hefði kannski mátt lesa út úr skilaboðum þeirra til keppenda í morgun. Hann segir fyrirtækið hafi verið spennt fyrir verkefninu en það hafi ekki verið annað í stöðunni en að hætta við.
„Við sáum fram á það að við myndum tapa þvílíkt mikið af peningum, þannig að það var bara gripið til þeirra örþrifaráða að stoppa þetta.“
Fyrirtækið tapar einhverjum upphæðum vegna verkefnisins, eins og launakostnaði starfsmanna og greiðslur fyrir tækjabúnað sem fæst ekki endurgreiddur.
„Þetta var bara spurning um einhverja hundraðþúsundkarla eða milljónir og þá mátum við það svo að það væri betra að slaufa þessu strax.“

„Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV segir að því hafi aldrei verið slegið föstu að RÚV myndi sýna frá keppninni og aðstandendum hennar hafi verið gerð grein fyrir því strax. Það hafi verið ljóst frá upphafi að bratt hafi verið farið af stað og kostnaðarsamt sé að sýna beint frá svona umfangsmikilli keppni úti á landi. Allra leiða hafi verið leitað en því miður hafi það ekki gengið upp. Það hafi komið á óvart að keppnin hafi staðið og fallið með því hvort hún yrði í beinni útsendingu eða ekki,“ segir í frétt um málið á vef RÚV.
Sindri segir að K2 Events muni ekki koma að þessu verkefni á næsta ári en vonar að hún verði sett aftur í fyrra horf.
„Það þarf að verða einhver hugarfarsbreyting og það þarf að gera keppnina spennandi aftur.“