Fötin eru innblásin af íslenskri náttúru þar sem sterkar andstæður mætast eins og eldur og ís.
„Ég vildi að Ari myndi skera sig vel úr hópnum og valdi þess vegna ljós silkisatín jakkaföt á hann á meðan restin af hópnum er í dekkri tónum. Hann er svo í rauðtóna rúllukragabol undir jakkafötunum sem tónar við hinar bakraddirnar sem klæðast rauðum tónum sem blandast yfir í svart. Það vísar í eldgos og ástríðueldinn innra með okkur öllum,“ segir Ýr sem fékk mjög stuttan tíma til að gera fötin.

Hún segir að hún hafi viljað að Ari hefði mynstur á jakkanum en það er unnið úr íslenskum rúnatáknum undir áhrifum Art Deco. „Ég setti svo rauða borða umhverfis upphandleggina á jakkanum til að ýkja aðeins jakkann og er smá saga á bak við það líka, það er að segja, hann er eins konar boðberi jákvæðni og lagið fjallar um val okkar allra til þess að breyta rétt og bæta heiminn. Þannig að mér fannst búningurinn hans mega vera svolítið eins og hann væri foringi friðarboðskaps.“
Breyttu atriðinu rétt fyrir brottför
Ýr var komin með efnið í hendurnar viku fyrir brottför íslenska hópsins og þurfti því aldeilis að spýta í lófana.„Ég fékk tiltölulega frjálsar hendur við úrvinnsluna á búningunum sem er alveg æðislegt og einmitt þannig sem maður vill fá að vinna, en ég kom auðvitað með margar tillögur sem svo hópurinn samþykkti. Það var svo þannig að hópurinn breytti atriðinu tveimur dögum áður en farið var til Portúgals, sem varð til þess að fötin sem Vignir og Gunnar voru í pössuðu ekki alveg inn í myndina og þeir þurftu að hlaupa um Smáralindina með Þórunni daginn fyrir brottför og finna sér ný föt sem pössuðu betur inn í heildarmyndina.“
Hún segir það mikinn heiður að fá að hanna föt sem munu sjást í stofum heimsins en þetta eru fyrstu herrafötin sem hún hefur hannað. „Hingað til hef ég bara verið að gera föt á konur fyrir utan gjöf á pabba og kærasta minn, svo þetta var frábært tækifæri fyrir mig til að sanna að ég get gert herraföt líka.“