New York Times greinir frá fundinum sem átti sér stað í Trump-turninum í New York 3. ágúst árið 2016. Erik Prince, öryggisverktaki og óformlegur ráðgjafi framboðsins, kom fundinum á. George Nader, ráðgjafi krónprinsa Sádí-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmanna, sagði Donald Trump yngri, elsta syni frambjóðandans, að þeir vildu ólmir hjálpa Trump að sigra í kosningunum.
Fundinn sat einnig Joel Zamel, sérfræðingur í samfélagsmiðlum. Ísraelskir leyniþjónustumenn eru sagðir vinna fyrir Psy-Group, fyrirtæki hans sem sérhæfir sig í upplýsingasöfnun og skoðanamótun í gegnum samfélagsmiðla. Fyrirtækið á að hafa verið búið að leggja drög að margmilljón dollara tillögu að samfélagsmiðlaherferð til að hjálpa Trump að ná kjöri.
Ekki liggur fyrir hvort að eitthvað varð af herferðinni en Trump yngri á að hafa tekið vel í hugmyndirnar á fundinum.
Saksóknarar Roberts Mueller, sérstaka rannsakandans sem kannar mögulegt samráð á milli framboðs Trump og rússneskra stjórnvalda, eru sagðir rannsaka fundinn og samskipti framboðsins við fulltrúa arabaríkjanna tveggja og Katars.
Áður hefur verið greint frá því að Nader vinni með rannsakendunum. Rannsóknin er meðal annars sögð beinast að því hvort að möguleg aðstoð arabaríkjanna hafi verið lögð fram í samráði við Rússa.

Hitti lykilmenn framboðsins ítrekað fyrir og eftir kosningar
Leiðtogar Sádí-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmanna höfðu ekki verið sáttir við stefnu Baracks Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í Miðausturlöndum. Þeir voru meðal annars ósáttir við kjarnorkusamninginn sem hann átti þátt í að gera við Írani. Fjölmiðlar sem tengjast löndunum tveimur gagnrýndu Hillary Clinton, andstæðing Trump í kosningunum, harðlega þegar hún var utanríkisráðherra í ríkisstjórn Obama.Nader er sagður hafa útskýrt fyrir Trump yngri á fundinum að krónprinsar Sádí-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmanna litu á föður hans sem sterkan leiðtoga sem myndi fylla upp í valdatóm sem þeir teldu að Obama hefðu skapað í Miðausturlöndum. Þeir myndu glaðir hjálpa Trump eftir fremsta megni.
Í kjölfarið fundaði Nader ítrekað með lykilmönnum framboðs Trump eins og Jared Kushner, tengdasyni hans, Michael Flynn, sem síðar var þjóðaröryggisráðgafi Trump til skamms tíma, og Stephen Bannon, sem tók við sem kosningastjóri framboðsins síðustu mánuðina fyrir kosningarnar. Þau samskipti héldu áfram fram yfir kosningar. Flynn hefur síðan verið ákærður og játaði sig sekan um að hafa logið um samskipti sín við rússneskan sendiherra.
Trump hefur átt í nánu sambandi við Sádí-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmin sem forseti. Fyrsta opinbera heimsókn hans var til Sádí-Arabíu. Þá tók hann afstöðu með ríkjunum tveimur þegar þau reyndu að einangra Katar þrátt fyrir þarlend stjórnvöld hafi lengi verið nánir bandamenn Bandaríkjanna. Sú ákvörðun kom mörgum á óvart enda eru bandarískar herstöðvar í Katar. Skoðun Trump á deilunni var einnig ólík afstöðu Rex Tillerson, þáverandi utanríkisráðherra hans, sem talaði á diplómatískari nótum.
Nú síðast dró Trump Bandaríkin út úr kjarnorkusamningnum við Íran sem ríkin tvö hafa lengi hamast gegn.

Man eftir fundinum en segir hann ekki hafa náð lengra
Fulltrúi Sádí-Arabíu neitar því að Nader hafi nokkru sinni unnið fyrir landið og hann hafi aldrei haft heimild til að tala í nafni krónsprins landsins. Lögmaður Zamel segir að hann hafi aldrei staðið fyrir herferð fyrir framboð Trump og ekki tekið þátt í bandarísku forsetakosningunum á nokkurn hátt.Lögmaður Donalds Trump yngri sagði í yfirlýsingu að skjólstæðingur sinn minntist fundar með Erik Prince, George Nader og öðrum einstaklingi sem „gæti hafa verið“ Zamel. Þeir hafi kynnt fyrir Trump yngri samfélagsmiðla- eða markaðsáætlun. Trump yngri hafi ekki haft áhuga og málið hefði ekki náð lengra.
Ólöglegt er fyrir erlendar ríkisstjórnar og einstaklinga að hafa afskipti af bandarískum kosningum. Heimildarmenn New York Times segja að fulltrúa framboðs Trump hafi engu að síður ekki virst hafa áhyggjur af því að vinna með útlendingum.
Fundurinn þykir minna á annan umtalaðan fund í Trump-turninum í júní sama ár. Þá samþykkti Trump yngri að hitta rússneskan lögfræðing sem tengsl við stjórnvöld í Kreml vegna þess að hann átti von á að fá skaðlegar upplýsingar um Clinton.