Kristján Flóki og félagar úr botnsætinu í Noregi Einar Sigurvinsson skrifar 21. maí 2018 18:15 Kristján Flóki Finnbogason í leik með FH síðasta sumar. Vísir/Stefán
Þrír Íslendingar komu við sögu í norsku úrvalsdeildinni í dag, en sjö leikjum er lokið í 11. umferð deildarinnar. HM-farinn, Samúel Kári Friðjónsson, byrjaði inni á miðjunni hjá Vålerenga þegar liðið tapaði 3-0 fyrir Tromsø. Samúel var tekinn af velli eftir 70. mínútna leik. Vålerenga er í 6. sæti deildarinnar með 18 stig. Einu stigi meira en Tromsø sem situr í 7. sætinu. Start vann 1-0 sigur á Bodø/Glimt. Eina mark leiksins skoraði Espen Børufsen á 7. mínútu. Kristján Flóki Finnbogason lék allan leikinn í liði Start en Aron Sigurðarson ónotaður varamaður hjá Bodø/Glimt. Með sigrinum fór Start úr 16. og neðsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar í 15. sætið með sjö stig. Bodø/Glimt er í 14. sæti með níu stig. Emil Pálsson var í byrjunarliði Sandefjord sem tapaði fyrir Sarpsburg, 1-0. Hann fór af velli á 64. mínútu. Útlitið er ekki gott hjá Sandefjord sem situr í 16. og neðsta sæti deildarinnar með fimm stig eftir 11 umferðir. Sarpsborg er í 4. sæti. Einum leik er enn ólokið í norsku úrvalsdeildinni þar sem Lillestrøm tekur á móti toppliði Brann.Úrslit dagsins í Noregi: Haugesund - Rosenborg 1-2 Start - Bodø/Glimt 1-0 Kristiansund - Strømsgodset 4-0 Ranheim - Molde 3-1 Sandefjord - Sarpsborg 0-1 Stabæk - Odd 2-1 Tromsø - Vålerenga 3-0
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Fleiri fréttir Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Sjá meira