Aðilarnir sem um ræðir eru John Brennan, fyrrverandi yfirmaður CIA sem er reglulegur gestur NBC News, James Comey, fyrrverandi yfirmaður FBI, Michael V. Hayden, fyrrverandi yfirmaður CIA, Susan E. Rice, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Barack Obama, James R. Clapper, fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustumála Bandaríkjanna, og Andrew McCabe, fyrrverandi aðstoðar-yfirmaður FBI.
Bent hefur verið á að hvorki Comey né McCabe eru lengur með öryggisheimildir eftir að þeim var vikið úr starfi. Aðilarnir sem um ræðir og eiga á hættu að missa öryggisheimildir sínar eru því í rauninni bara fjórir.
„Ég held að hann sé að trolla fólk,“ sagði Ryan við blaðamenn í dag. Hægt er að skilgreina það að „trolla“, sem mögulega getur kallast að „leppalúðast“, sem að kasta frá sér staðhæfilausum og umdeildum skoðunum og yfirlýsingum, að vera dónalegur eða kvikindislegur með því markmiði að leiða til rifrildis og leiðinda.
Fleiri virðast þó á þeirri skoðun að Trump sé að reyna að kæfa gagnrýni gagnvart sér.
Þegar æðstu embættismenn á borð við þá sem hér hafa verið nefndir láta af störfum er þeim venjulega veitt áfram öryggisheimild, einkum til þess að eftirmenn þeirra í embætti geti ráðfært sig við þá um ýmis málefni tengdum starfinu. Trump væri því að feta afar ótroðnar slóðir, láti hann verða af því að afturkalla öryggisheimildirnar.
Sjá einnig: Trump íhugar að afturkalla öryggisheimildir háttsettra gagnrýnenda sinna
Trump hefur ítrekað sakað aðilana sex um að leka upplýsingum til fjölmiðla og skapa eigin staðreyndir til að grafa undan embætti Trump. Þá hefur hann einnig sakað þá um að græða á aðgangi sínum þar sem nokkrir þeirra hafa skrifað bækur um störf sín.
Stjórnmála-, og embættismenn eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt hugmynd forsetans og er hann sakaður um að reyna að refsa fólki fyrir stjórnmálaumræðu.
Sérfræðingar sem Washington Post ræddi við segja að líklegast geti Trump staðið við hótanir sínar, lagalega séð. Hins vegar hafi það aldrei verið gert. Þó sé mögulegt að fyrsta ákvæði stjórnarskrár Bandaríkjanna, sem snýr að málfrelsi, verndi aðilana fjóra.
.@SpeakerRyan dismisses Trump calling for security clearances to be stripped from his political opponents: "I think he's just trolling people." pic.twitter.com/vwrOqoox6O
— Aaron Rupar (@atrupar) July 24, 2018