Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.
Uppskriftirnar verða ávallt aðgengilegar hér á Vísi. Hér að neðan má sjá uppskriftir úr þætti kvöldsins.
Lax í rjómasósu með döðlum og sólþurrkuðum tómötum
- 500 – 600 g lax, beinhreinsaður
- Ólífuolía til steikingar + smá smjörklípa
- 1 1/2 dl smátt skorinn blaðlaukur
- 10 döðlur, mjúkar og smátt skornar
- 10 sólþurrkaðir tómatar, smátt skornir
- 1 tsk ferskt timían
- Salt og nýmalaður pipar, magn eftir smekk
-
2 – 3 dl rjómi.
Aðferð:
- Hitið olíu á pönnu, skerið laxinn í jafn stóra bita og steikið á hvorri hlið í 2 – 3 mínútur. (Byrjið á því að steikja laxinn á roðhliðinni)
- Kryddið laxinn með timían, salti og pipar.
- Bætið vænni smjörklípu út á pönnuna rétt í lokin.
- Setjið laxinn á disk, leggið til hliðar og útbúið sósuna.
- Skerið blaðlauk, döðlur og sólþurrkaða tómata afar smátt og steikið upp úr olíu í smá stund, hellið rjómanum saman við og kryddið með salti og pipar. Leyfið sósunni að malla svolítið og berið strax fram með laxinum.
- Berið fiskinn fram með parmesan kartöflumús
Parmesan kartöflumús
- 600 g bökunarkartöflur
- 1 dl rjómi
- 60 g smjör
- 50 g rifinn parmesan ostur
-
Salt og pipar, magn eftir smekk
Aðferð:
- Afhýðið kartöflur og sjóðið í vel söltu vatni þar til kartöflurnar eru mjúkar í gegn.
- Hellið vatninu af og bætið rjómanum, smjörinu, nýrifnum parmesan ostinum saman við og stappið með kartöflustöppu þar til þið náið þeirri áferð sem þið kjósið.
- Bragðbætið með salti og pipar.
Ómótstæðileg baka með spínati, geitaosti og rauðrófum
Grunndeig fyrir bökur
- 150 g Kalt smjör
- 250 g Hveiti
- Salt á hnífsoddi
- 1 eggjarauða
- 4 msk Vatn
- Setjið smjör, hveiti, salt, eggjarauða og vatn í matvinnsluvél eða hnoðið með höndum þar til deigið er orðið samlaga. Sláið deiginu upp í kúlu og setjið plastfilmu utan um.
- Látið bökudeigið standa í kæli í minnsta kosti 30 mín áður en það er flatt út.
- Fletjið deigið þunnt út og setjið í eldfast hringlaga form, gatið deigið hér og þar með gaffal .
- Bakið botninn við 220°C eða þangað til hann er orðinn stífur og farinn að taka lit.
Fylling
- 1 msk ólífuolía
- 150 g spínat
- ½ l aukur
- 5 egg
- 200 g sýrður rjómi
- 1 tsk fersk timían
- 6 – 8 þykkar sneiðar geitaostur
- 1 rauðrófa
- Spínat, meðlæti
- 1 msk Dijon sinnep
- 2 dl ólífuolía
- Salt og pipar
- 150 g ristaðar valhnetur