
Kartöflumús

Jólaboð Evu: Allar uppskriftirnar úr öðrum þætti
Í Jólaboð Evu í síðustu viku ldaði Eva Laufey Kjaran kalkúnabringur með öllu. Einnig útbjó hún ristaðar möndlur, Créme Brulée og Pavlovur. Allar uppskriftirnar birtast hér á Vísi en næsti þáttur er sýndur annaðkvöld á Stöð 2.

Aðventumolar Árna í Árdal: Jólaskjóður
Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.

Nautasteik með kartöflumús: Góður og einfaldur réttur á aðventu
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður sendi nýverið frá sér þriðju matreiðslubókina sem nefnist Hvað er í matinn? Þar býður hún lesendum upp á einfalda en girnilega rétti fyrir öll kvöld vikunnar sem allir geta gert.

Oumph! wellington og sætkartöflumús með karamellupekanhnetum
"Það getur eiginlega ekki klikkað að leiða saman Oumph! og dýrðina sem er smjördeig. Það var góður dagur þegar ég uppgötvaði að langflest smjördeig er vegan, enda langoftast framleitt úr smjörlíki og olíum,“ segir Guðrún Sóley Gestsdóttir dagskrárgerðarkona.

Einfalt með Evu: Lax í rjómasósu og ómótstæðilega baka
Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.

Í eldhúsi Evu: Kjúklingur saltimbocca
Úr þættinum Í eldhúsi Evu, sem er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum.

Hægeldaður lambaskanki með ostakartöflumús
Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson gefur gómsætar uppskriftir á Stöð 2 fram að jólum.

Bakaður þorskur í brúnuðu smjöri með blómkáli og möndlum borin fram með sveppakartöflumús
Dásamlegur bakaður þorskur sem bráðnar í munni að hætti meistarakokksins Eyþórs Rúnarssonar

Bragðmikill fiskréttur með ólífusalsa
Fiskur er hinn fullkomna fæða, hann er bæði svakalega hollur og góður. Það á ekki að elda fisk í langan tíma og í síðasta þætti af Matargleði Evu lagði ég áherslu á íslenskt hráefni og eldaði meðal annars fiskrétt þar sem fiskurinn fær að njóta sín. Tilvalið að bera þennan rétt fram í matarboðum helgarinnar.

Steiktur saltfiskhnakki með lauksultu, tómat-vinaigrette og sinnepskartöflumús
Ljúffengur steiktur saltfiskhnakki frá meistarakokknum Eyþóri Rúnarssyni.

Pönnusteiktur lax með döðlum – að hætti Rikku
Pönnusteiktur lax með döðlum, sólþurrkuðum tómötum og sítrónusmjörsósu að hætti Rikku

Kjúklingur í satay-sósu - UPPSKRIFT
Dröfn Vilhjálmsdóttir bloggar á síðunni Eldhússögur.

Helgarmaturinn - Léttsaltaðir þorskhnakkar með kartöflumús og tómatbasilikusósu
Tinna Gilbertsdóttir starfar sem sölustjóri hjá Iceland Seafood og deilir hér hollri og ljúffengri uppskrift að léttsöltuðum þorskhnökkum með kartöflumús og tómatbasilíkusósu.

Ómótstæðileg hnetusteik
Kertaskreytingakonan Ragnhildur Eiríksdóttir hefur nú hafist handa við að undirbúa jólin, föndra og hanna jólakortin sem eiginmaðurinn og rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson sér svo um að skrifa á. Lífið spjallaði við Ragnhildi og fékk uppskrift að hollum og góðum jólamat.

Hrefnusteik með wasabi-beikon-kartöflumús
Það verður ósvikin beikon stemning á Skólavörðustígnum næstkomandi laugardag 25. ágúst kl. 14 þegar beikonhátíðin Reykjavík Beikon Festival verður haldin hátíðleg.

Kartöflumús og meðlæti
Kartöflurnar eru bakaðar í ofni ofaná grófu salti í c.a 45 mín við 200° . kartöflurnar eru setta í gegnum sigti, rjóminn er soðin í c.a 3 mín og blandað saman við kartöflurnar og hrært vel saman, þá er smjörinu blandað saman við ásamt kryddi. Í þetta sinn erum við með trufluolíu, steinselju, salt og pipar. Hrærið vel í músinni þar til hún glansar fallega og smakkið vel til.

Lax með hvítlaukskartöflumauki og engifersósu
Sjóðið kartöflur, hvítlauk og smá salt saman í potti þar til kartöflurnar eru orðnar soðnar, sigtið þá kartöflurnar og maukið með soðnum hvítlauknunm,bætið rjóma saman við ásamt smjörinu og smakkið til með salti.