OPCW hefur meðal annars komið að rannsókninni á Skripal-eitruninni, þar sem Rússar eru sakaðir um að hafa beitt taugaeitrinu Novichok til að ráða fyrrverandi njósnarann Sergei Skripal af dögum í byrjun mars. OPCW var einnig að rannsaka efnavopnaárásina á Douma á þeim tíma. Stjórnarher Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, hefur verið sakaður um að framkvæma árásina en Rússar hafa sakað breta um að sviðsetja hana.
Skýr skilaboð
„Þessi aðgerð gegn OPCW er óásættanleg,“ sagði Ank Bijleveld-Schouten, varnarmálaráðherra Hollands, á blaðamannafundi nú í morgun. „Með því að opinbera aðgerðir Rússa erum við að senda skýr skilaboð: Rússland verður að hætta þessu.“Peter Wilson, sendiherra Breta í Hollandi, sló á svipaða strengi og sagði að GRU gæti einungis „unnið í skugganum“. Með því að varpa ljósi á aðgerðir þeirra væri hægt að koma í veg fyrir aðgerðir þeirra.
Fyrr í morgun höfðu yfirvöld Bretlands sakað Rússa um fjórar umfangsmikla tölvuárásir gegn fyrirtækjum í bæði Rússlandi og Úkraínu, gegn Demókrataflokknum í Bandaríkjunum og sjónvarpsstöð í Bretlandi.
Frétt Sky um ásakanir Breta í morgun.
Lögðu sérútbúnum bíl við höfuðstöðvar OPCW
Ank Bijleveld sagði í morgun að mönnunum fjórum hefði verið vísað úr landi og þeir tilheyrðu allir sveitinni Sandworm, sem er sérstök sveit hakkara innan GRU. Hald var lagt á allan búnað þeirra. Þar á meðal fartölvur og síma.Samkvæmt Hollendingum ferðuðust mennirnir fjórir, sem heita Alexei Morenetz, Yevgeny Serebriakov, Oleg Sotnikov og Alexei Minin, til Hollands frá Moskvu þann 10. apríl með opinberum vegabréfum. Þann 13. apríl lögðu þeir bíl, sem hafði verið útbúinn sérstökum tölvuárásabúnaði, fyrir utan höfuðstöðvar OPCW.

Skömmu áður hafði GRU reynt að komast inn í kerfi OPCW með svokölluðum „spearphishing“ árásum. Þær felast í því að senda tölvupósta á fólk, sem látnir eru líta út fyrir að koma frá stofnunum eða fyrirtækjum og fá fólk til að gefa upp lykilorð sín. Árásin á Demókrataflokkinn, í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum 2016 var framkvæmd með slíkum hætti.
Þegar mennirnir fjórir voru handsamaðir reyndu þeir að eyðileggja síma sem þeir voru með en án árangurs. Rannsókn sýndi að einn síma þeirra hafði fyrst verið gangsettur í höfuðstöðvum GRU. Það uppgötvaðist með því að finna fyrsta símasendinn sem síminn tengdist.
Mennirnir voru einnig með tuttugu þúsund evrur og tuttugu þúsund dali í reiðufé. Þar að auki fannst kvittun í rusli þeirra sem mennirnir höfðu fengið hjá leigubílstjóra í Moskvu. Hún sýndi að þeim hafði verið ekið frá höfuðstöðvum GRU til flugvallarins í Moskvu.

Í Sviss var tölvan notuð til árásar á tölvu Alþjóða lyfjaeftirlitsstofnunarinnar, sem hefur opinberað skipulagða lyfjanotkun rússneskra íþróttamanna.
Wilson sagði ljóst að GRU ynni að því að hreinsa upp eftir yfirvöld Rússlands.
Fjöldi sönnunargagna
Það er afar sjaldgæft að leyniþjónustur rannsóknir sínar og aðferðir með þeim hætti sem Hollendingar hafa gert í morgun. Máli þeirra til stuðnings sýndu Hollendingar fjölda sönnunargagna.Hér má sjá áhugaverðan tísta-þráð blaðakonu BBC, sem fylgdist með blaðamannafundinum og tók myndir af sönnunargögnum Hollendinga.
Vert er að taka fram að Rússar hafa þvertekið fyrir að hafa komið að öllum atvikunum hér að ofan. Skripal-eitruninni, örlögum MH17 og öllum tölvuárásunum. Í yfirlýsingu frá sendiráði Rússlands í London segir að þessar nýjustu ásakanir séu liður í alþjóðasamsæri gegn Rússlandi sem ætlað sé að draga úr trúverðugleika þeirra. Þá segir, ranglega, að ásökununum fylgi engar sannanir.
Maria Zakharova, talskona Utanríkisráðuneytis Rússlands, tjáði sig um málið skömmu fyrir hádegi.
Fréttin hefur verið uppfærð og myndinni af kvittuninni bætt við.
The UK's "imagination has no boundaries."
— Sky News (@SkyNews) October 4, 2018
Russia rejects cyber attack allegations by UK and Dutch authorities, dismissing them as an "infernal perfume mix".
Read about how Russian spies targeted Britain's Foreign Office: https://t.co/A36t9vVHi5 pic.twitter.com/4S2RLcxkpe