Rússland
1 2 3 4 5 6 … 101 ›
Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi „Ég held að Rússar vilji sjá stríðið taka enda; virkilega. Ég tel þá halda svolítið á spilunum þar sem þeir hafa tekið yfir mikið landsvæði. Þeir eru með spilin í höndunum.“ Erlent 20.2.2025 07:03
Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, kallar Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, „einræðisherra“ og gefur í skyn að hann sé spilltur. Í færslu sem hann skrifaði, eftir að Selenskí sagði Trump búa í heimi upplýsingafölsunar, varpar Trump fram fjölda ósanninda um Úkraínu. Erlent 19.2.2025 16:51
Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur biðlað til ríkisstjórnar Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, að bera virðingu fyrir sannleikanum og forðast ósannan áróður varðandi það hvernig stríðið í Úkraínu hófst. Er það eftir að Trump lagði til að Úkraínumenn bæru ábyrgð á innrás Rússa og fór með ýmis önnur ósannindi um stríðið, hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum og annað. Erlent 19.2.2025 14:24
Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Donald Trump Bandaríkjaforseti virtist gefa í skyn í gær að Úkraínumenn gætu sjálfum sér um kennt að Rússar hefðu ráðist inn í Úkraínu og sagði að þeir hefðu getað samið um frið fyrir löngu. Erlent 19.2.2025 06:50
Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Fulltrúar Bandaríkjanna og Rússlands hafa ákveðið að koma aftur á diplómatísku sambandi, skipa sendiherra í ríkjunum og koma á fót samninganefnd sem verður falið að eiga í viðræðum um endalok stríðsins í Úkraínu. Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands greindu frá þessu að loknum fundi sem þeir áttu um Úkraínu, án fulltrúa frá Úkraínu. Erlent 18.2.2025 19:46
Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Fyrsta fundi bandarískra og rússneskra erindreka í Ríad í Sádi-Arabíu er lokið. Þar var komist að samkomulagi um að halda frekari viðræður um að bæta samskipti ríkjanna og að mynda sérstök viðræðuteymi sem ræða eigi um innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 18.2.2025 14:11
Bandaríkjamenn og Rússar funda með Evrópu á hliðarlínunni Fulltrúar Bandaríkjanna og Rússlands hittast á fundi í Sádí Arabíu nú í morgunsárið þar sem Úkraínustríðið verður til umræðu. Erlent 18.2.2025 07:15
Athygli Bandaríkjanna beinist sífellt meira að Kína Sérfræðingur í alþjóðamálum segir ummæli æðstu ráðamanna í Bandaríkjunum bera þess merki að athygli þeirra beinist sífellt meira að Kína og Kyrrahafsinu. Bandaríkin hyggist ekki yfirgefa Evrópu eða Atlantshafsbandalagið en Evrópa þurfi í auknum máli að sinna vörn álfunnar sjálf. Innlent 17.2.2025 19:09
Rubio mættur til Sádi-Arabíu og Lavrov segir Evrópu ekki eiga neitt erindi Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir Evrópu ekki eiga neitt erindi við borðið hvað lítur að friðarviðræðum vegna stríðsins í Úkraínu sem framundan eru á milli Rússlands og Bandaríkjanna. Fulltrúar rússneskra og bandarískra stjórnvalda munu funda í Sádi-Arabíu á morgun þar sem mögulegar friðarviðræður verða ræddar, án aðkomu Úkraínumanna eða annarra Evrópuríkja. Erlent 17.2.2025 11:57
Reiðubúinn til að senda hermenn til Úkraínu Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segist reiðubúinn til að senda hermenn til Úkraínu sem friðargæsluliða ef samningar nást um endalok átaka. Boðað hefur verið til neyðarfundar í París í dag vegna framgöngu Donald Trump Bandaríkjaforseta. Erlent 17.2.2025 06:51
Neitaði að skrifa undir plagg Trumps um sjaldgæfa málma Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist hafa sagt ráðherrum sínum að skrifa ekki undir samning við Bandaríkjamenn um að veita þeim síðarnefndu aðgang að umfangsmikilli námuvinnslu í Úkraínu. Hann segir samkomulagið eingöngu snúa að hag Bandaríkjanna. Erlent 16.2.2025 08:00
Evrópskir ráðamenn funda vegna Trumps Evrópskir ráðamenn, þar á meðal Emmanuel Macron, forseti Frakklands og Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, mæta á „neyðarfund“ í næstu viku. Fundarefnið er ákvörðun Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, um að taka yfir friðarviðræður á milli Úkraínu og Rússlands. Erlent 15.2.2025 23:58
Kallar eftir evrópskum her Úkraínumenn munu ekki framfylgja samkomulagi sem þeir hafa enga aðkomu að. Þetta sagði Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, í ræðu á öryggisráðstefnunni í München í dag og var hann greinilega að senda Donald Trump, forseta Bandaríkjanna skilaboð. Erlent 15.2.2025 15:01
Ný sveit njósnara leiðir skuggastríð Rússa Skuggastríð Rússa gegn Vesturlöndum er leitt af nýju teymi njósnara hjá leyniþjónustu rússneska hersins (GRU). Þessi hópur er meðal annars talinn hafa sent eldsprengjur um borð í fragtflugvélar og reynt að ráða forstjóra stærsta hergagnaframleiðanda Evrópu af dögum, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 15.2.2025 13:06
Hótar hertum aðgerðum neiti Pútín að semja JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, segir að neiti Vladimír Pútin, forseti Rússlands, að semja um frið í Úkraínu og tryggja sjálfstæði Úkraínumanna til lengri tíma, muni Bandaríkin herða refsiaðgerðir og þvinganir gegn Rússlandi. Þá kæmi einnig til greina að senda bandaríska hermenn til Úkraínu. Erlent 14.2.2025 11:55
Segir Úkraínu enn á leið í NATO Úkraína mun að endingu ganga í Atlantshafsbandalagið. Þetta sagði Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, þegar þeir töluðu saman í síma í morgun en þá sagði Starmer einnig að engar viðræður um Úkraínu gætu átt sér stað án Úkraínu. Erlent 14.2.2025 10:53
Sprengjudróni flaug á steinhvelfingu Tsjernobyl-versins Skemmdir urðu á steinhvelfingu utan um Tsjernobyl-kjarnorkuverið í Úkraínu og eldur kviknaði eftir að dróni flaug á hana í nótt. Forseti Úkraínu fullyrðir að dróninn hafi verið rússneskur og að hann hafi verið öflugan sprengiodd. Erlent 14.2.2025 08:51
Vill draga úr útgjöldum til varnarmála með nýjum kjarnorkuvopnasamningum Donald Trump Bandaríkjaforseti segist vilja hefja viðræður við Rússa og Kínverja um nýjan kjarnorkuvopnasamning, í þeirri von um að ríkin gætu í framhaldinu skorið niður um helming í varnarmálum. Erlent 14.2.2025 06:38
Líklegra að komið verði á vopnahléi en friðarsamningum Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum og fyrrverandi sendiherra Íslands í Rússlandi og Bandaríkjunum telur líklegra að vopnahlé taki gildi á milli Úkraínu og Rússlands en að gerðir verði friðarsamningar þeirra á milli. Innlent 13.2.2025 22:23
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sýndi á spilin fyrir viðræður Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vann líklega stóran sigur í gær. Hann gerði það ekki á víglínunni í Úkraínu eða í Kúrsk, heldur á alþjóðasviðinu og hafa málpípur hans fagnað ákaft. Erlent 13.2.2025 14:11
Danir telja Rússa geta hafið stórstríð í Evrópu á allra næstu árum Rússar gætu verið tilbúnir að hefja stórstríð á meginlandi Evrópu á næstu fimm árum telji þeir Atlantshafsbandalagið veiklað eða sundrað, að mati dönsku leyniþjónustunnar. Bandaríkjastjórn hefur sagt að varnir Evrópu séu henni ekki efst í huga. Erlent 13.2.2025 09:12
Ráðamenn í Evrópu uggandi vegna viðræðna Trump og Pútín Stjórnvöld í sjö Evrópuríkjum sendu frá sér yfirlýsingu í gær þess efnis að þau þyrftu að eiga aðild að viðræðum um endalok átaka í Úkraínu, sem og ráðamenn þar í landi. Erlent 13.2.2025 06:57
Trump segir samningaviðræður um Úkraínustríðið hefjast strax Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ræddi við forseta Rússlands, Vladimír Pútín í dag í síma um Úkraínu, Miðausturlönd, orkumál, gervigreind og peningamál. Trump segir símtalið hafa verið langt og mjög árangursríkt í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Erlent 12.2.2025 18:02
Útilokar aðild Úkraínu að NATO og krefur Evrópu um meira Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir ríkisstjórn Donalds Trump, forseta, ekki telja að aðild Úkraínu af Atlantshafsbandalaginu vera raunsæja að svo stöddu. Hann sagði Bandaríkjamenn þó fylgjandi því að Úkraína haldi fullveldi sínu og mikilvægt væri að tryggja frið sem fyrst og ríki Evrópu þyrftu að spila stærri rullu. Erlent 12.2.2025 14:49
Skotflaugar féllu á Kænugarð Að minnsta kosti einn er látinn og þrír sagðir eftir skotflaugaárás á Kænugarð í nótt. Nokkrir eldar kviknuðu vegna árásarinnar en Rússar eru sagðir hafa kostið sjö skotflaugum að Kænugarði og Kryvyi Rog og einnig notast við 123 sjálfsprengidróna til árása í Úkraínu. Erlent 12.2.2025 12:01
Rússar láta bandarískan kennara úr haldi Bandaríski kennarinn Marc Fogel, sem var handtekinn fyrir þremur árum í Rússlandi fyrir vörslu á maríjúana, hefur verið sleppt úr haldi. Bandaríkjamenn sömdu við Rússa um skiptin en ekki liggur fyrir hvað þeir létu af hendi í staðinn. Erlent 11.2.2025 20:59
Selenskí segir nauðsynlegt að tryggja varanlegan frið Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segist reiðubúin til að ganga til hvers konar viðræðna um endalok átaka að því gefnu að Evrópa og Bandaríkin skuldbindi sig til að styðja áfram við Úkraínu. Erlent 10.2.2025 08:15
Sóttu fimm kílómetra inn fyrir varnir Rússa Úkraínskir hermenn gerðu í gær nokkrar tiltölulega umfangsmiklar gagnárásir gegn Rússum í Kúrsk-héraði. Eru þeir sagðir hafa brotið sér leið gegnum varnir Rússa og sótt fram allt að fimm kílómetra. Erlent 7.2.2025 11:35
Skotflaugar frá Norður-Kóreu orðnar nákvæmari Norðurkóreskar skotflaugar sem Rússar skjóta nú reglulega að Úkraínu eru orðnar töluvert nákvæmari. Rússar hafa skotið þessum eldflaugum að skotmörkum í Úkraínu í rúm tvö ár en Úkraínumenn segja þær orðnar töluvert betri. Erlent 6.2.2025 15:37
Þórdís Kolbrún gætir úkraínskra barna Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og nú þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið skipuð sérstakur sendifulltrúi um stöðu barna í Úkraínu. Um er að ræða ólaunað starf sem hún mun sinna meðfram þingmennsku. Innlent 5.2.2025 11:39