
Er ástæða til þess að hafa áhyggjur af fjármálamörkuðum?
Fjármálamarkaðir hafa það meginhlutverk að miðla fjármagni frá fjármagnseigendum til þeirra sem skortir fjármagn og eru því mikilvægur hluti innviða samfélagsins. Á fjármálamarkaði eru milliliðir nauðsynlegir til að fjármálakerfið geti sinnt hlutverki sínu. Á Íslandi eru bankar og lífeyrissjóðir fyrirferðarmiklir en einnig eru starfrækt minni og sérhæfðari fyrirtæki, eins og rekstrarfélög verðbréfasjóða og verðbréfamiðlanir.
Heilbrigt fjármálakerfi er nauðsynlegt fyrir einstaklinga, fyrirtæki og aðra, svo sem lífeyrissjóði. Einstaklingar taka lán til þess að fjármagna fasteignakaup og fyrirtæki taka lán eða safna hlutafé, m.a. til þess að fjármagna véla- og tækjakaup. Ýmsir fjárfestar geta keypt hlutafé og t.d. bankar eða lífeyrissjóðir geta veitt lán. Rekstur banka gengur út á að ávaxta fjármagn aðila sem þurfa ekki á því að halda fyrr en síðar, og greiðir bankinn vexti eða arð fyrir, og lánar á móti til þeirra sem þurfa á fjármagni að halda og geta greitt til baka með vöxtum síðar. Munurinn á innlánsvöxtum og útlánsvöxtum er vaxtamunur. Sá munur þarf að standa undir kostnaði við rekstur bankans og viðunandi ávöxtun til eigenda bankans. En þar sem vaxtakjör sem banki fjármagnar sig á ráðast af vaxtakjörum á fjármálamarkaði, skiptir vaxtamyndun á markaði lykilmáli í ofangreindu ferli.
Eftir því sem velta á markaði er meiri má gera ráð fyrir því að skoðanir margra aðila hafi áhrif á markaðsverð, og skiptir skoðun þeirra á áhættu fjárfestingarkosta miklu máli. Skilvirkur markaður er þannig nauðsynleg forsenda þess að áhætta sé rétt metin. Vextir endurspegla áhættu sem fjármagnseigendur taka þegar þeir lána fé sitt. Ef eigendur fjármagns telja að áhætta sé mikil krefjast þeir hærri vaxta en ef áhætta er minni. Þannig eru vextir á ríkisskuldabréfum lægri en á áhættusamari fjárfestingum.
Því betur sem fjármálamörkuðum tekst að verðleggja áhættu því betur gegna þeir hlutverki sínu sem miðlarar fjármagns. Ef áhætta er metin óeðlilega lítil má gera ráð fyrir því að ráðist verði í of mörg verkefni sem munu ekki standa undir sér með tilheyrandi tjóni. Ef áhætta er metin of mikil verða færri verkefni fjármögnuð en ella, sem gæti leitt til tapaðra tækifæra sem annars myndu reynast hagkerfinu vel. Gera má ráð fyrir að eftir því sem áhætta er betur verðlögð hafi það jákvæð áhrif á hagvöxt og lífskjör í landinu. Skilvirkir fjármálamarkaðir, sem m.a. fela í sér nægilega veltu, skipta hér höfuðmáli.
Þorri landsmanna geymir sparnað sinn í lífeyrissjóðum landsins sem eru meðal stærstu þátttakenda á íslenskum fjármálamarkaði. Sjóðirnir verða áfram virkir í fjárfestingum hér innanlands þó þeir fjárfesti í auknum mæli erlendis á næstu árum. Umræða á komandi misserum um leiðir til að auka skilvirkni á fjármálamarkaði og bæta áhættumat ætti því að snerta okkur öll, enda eru öflugir fjármálainnviðir mikilvæg stoð í íslensku samfélagi rétt eins og aðrir samfélagsinnviðir. Kvika mun á næstu vikum fjalla nánar í Markaðnum um ástæður minnkandi virkni á mörkuðum og mögulegar umbætur og vonast eftir virku samtali um málefnið.
Skoðun

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar