Kynntust aðstæðum jafnaldra í Úganda í fermingarfræðslunni Heimsljós kynnir 30. október 2018 10:15 Úr fátækrahverfi í Kampala þar sem Hjálparstarf kirkjunnar styður verkefni með unglingum. gunnisal
Um tvö þúsund börn í fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar um land allt ganga þessa dagana í hús í hverfum sínum með bauk Hjálparstarfs kirkjunnar og safna fyrir verkefnum stofnunarinnar í Úganda og Eþíópíu. Fyrr í þessum mánuði komu til landsins tveir ungir félagsráðgjafar, Douglas Talemwa Lubega og Gertrude Samari Nakkazi, frá verkefnasvæðum Hjálparstarfs kirkjunnar í Úganda og fluttu rúmlega fjörutíu fræðsluerindi um verkefnin, bæði í fermingarfræðslu og í félagsfræðiáföngum í framhaldsskólum. Douglas og Trudy lýstu aðstæðum jafnaldra sem Hjálparstarfið aðstoðar í sveitum Úganda, unglinga sem búa í hreysum og hafa lítinn aðgang að drykkjarhæfu vatni og hreinlætisaðstöðu. Þau fræddust líka um aðstæður unglinga sem hafa flúið fátæktina í sveitinni og haldið til höfuðborgarinnar í leit að betra lífi. „Það sem er mest um vert er að Douglas og Trudy - unga fólkið sem talar við krakkana - segja frá sjálfu sér og aðstæðunum sem þau ólust upp við. Þau eru bæði frábærar fyrirmyndir sem sýna að með vilja, þrautseigju og dugnaði er hægt að öðlast farsælt líf,“ segir í nýútgefnu fréttablaði Hjálparstarfs kirkjunnar. Fjáröflun með aðstoð barna í fermingarfræðslu á þessu hausti er sú tuttugasta í röðinni en í fyrra lögðu fermingarbörnin sitt af mörkum með því að safna rúmlega átta milljónum króna. Á vef Hjálparstarfsins segir að Hjálparstarf kirkjunnar fari þess á leit við landsmenn að taka vel á móti börnunum þegar þau banka upp á með bauk í hönd. Börnin ganga tvö til þrjú saman og baukurinn sem þau eru með er merktur Hjálparstarfi kirkjunnar, númeraður og með innsigli. Á þessu ári styrkir utanríkisráðuneytið þrjú langtíma þróunarsamvinnuverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar með 42 milljóna króna framlagi. Tvö verkefnanna eru í Úganda, meðal annars verkefnið í Kampala þar sem unnið er að valdeflingu ungs fólks. Þriðja verkefnið er í Eþíópíu. Ennfremur styrkir utanríkisráðuneytið tvö mannúðarverkefni Hjálparstarfsins á þessu ári, í Eþíópíu og Palestínu, með 50 milljóna króna framlagi.Vefur HjálparstarfsinsÞessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim.Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Hjálparstarf Þróunarsamvinna Mest lesið Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Innlent Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Erlent Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Innlent Tala látinna komin yfir þúsund Erlent Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík Innlent RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Innlent „Það er skítkalt hérna“ Erlent Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Innlent Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Innlent Fullveldi Íslands háð því að alþjóðalög séu virt Innlent