Í yfirlýsingu frá Eimskip eru breytingarnar reifaðar, og segir þar meðal annars að á bláu línunni muni Goðafoss og Dettifoss nú hætta viðkomum á Reyðarfirði og Þórshöfn í Færeyjum á leið sinni til Evrópu. Þess í stað munu skipin sigla frá Reykjavík beint til Rotterdam á fimmtudögum og vera þar á sunnudögum. Á leið sinni aftur til Íslands muni bláa línan koma við í Bremerhaven, Helsingborg, Árósum og Þórshöfn í Færeyjum. Fyrsta ferð skipanna samkvæmt þessari áætlun verður 15. nóvember næstkomandi.
Sjá einnig: Átján sagt upp hjá Eimskip
Þetta þýðir þó ekki að Eimskip hafi hætt komum sínum til Reyðarfjarðar. Breytingarnar á rauðu línunni munu þannig fela í sér að Perseus og Pollux munu sigla frá Reyðarfirði á fimmtudagskvöldum til Þórshafnar í Færeyjum. Þaðan munu skipin svo sigla til Árósa þar sem þau verða á mánudögum. Rauða línan mun þannig tengjast gulu línunni í Færeyjum sem gefur möguleika á flutningi inn á Bretland og meginland Evrópu. Rauða línan mun áfram koma við í Swinoujscie í Póllandi og Fredrikstad í Noregi hálfsmánaðarlega. Brottför frá Reykjavík er í hádegi á miðvikudögum og er fyrsta ferð samkvæmt þessari áætlun frá Reykjavík 14. nóvember næstkomandi.

Áfram verði unnið að þróun á siglingarkerfi félagsins með það í huga að veita framúrskarandi þjónustu á Norður-Atlantshafi og draga úr kostnaði „eins og unnt er.“
Stytti afhendingartíma
Haft er eftir Matthíasi Matthíassyni, framkvæmdastjóra flutningasviðs Eimskips, að siglingakerfið hafi í gegnum tíðina verið „hryggjarstykkið“ í þjónustu fyrirtækisins fyrir inn- og útflutning.„Þessar breytingar á siglingakerfi Eimskips miða að því að styrkja kerfið í heild sinni, ásamt því að viðhalda okkar yfirburða þjónustustigi. Flutningaþarfir viðskiptavina okkar taka sífelldum breytingum og mikilvægt að við aðlögumst þörfum markaðarins á hverjum tíma. Á meðan makrílvertíð stóð í haust vorum við t.d. með tímabundnar siglingar til Gdynia í Póllandi og Klaipeda í Litháen, sem mæltust vel fyrir á markaði. Fyrirhugaðar breytingar á siglingarkerfinu stytta afhendingartíma fyrir útflytjendur inn á helstu markaði í Evrópu án þess þó að skerða þjónustu í innflutningi,“ segir Matthías.
Þetta eru ekki einu breytingarnar sem gerðar hafa verið í rekstri Eimskips að undanförnu. Greint var frá því í gær að 18 starfsmönnum félagsins hafi verið sagt upp á dögunum en stjórnendur Eimskips lækkuðu nýverið afkomuspá félagsins fyrir árið um 15 prósent.