Skoðun

Vinna minna og allir vinna

Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti tillögu Vinstri grænna um að hefja tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar. Verkefnið hefur staðið yfir frá 2015 og nú taka um hundrað starfsstöðvar borgarinnar með um tvö þúsund starfsmenn þátt í verkefninu.

Stytting vinnuvikunnar er mikilvægt kjara- og jafnréttismál.

Þátttakendur geta stytt vinnuvikuna frá einni og upp í þrjár klukkustundir og eru útfærslur styttingar mismunandi eftir starfsstöðum. Ákveðið var að styttri vinnuvika myndi ekki leiða til launaskerðingar eða skerts þjónustustigs. Markmið verkefnisins er að kanna hvaða áhrif stytting vinnuvikuna hefur á álagsþætti í starfi sem geta valdið kulnum í starfi, samþættingu atvinnu og fjölskyldulífs og framleiðni.

Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar á verkefninu og ber þeim öllum saman um að styttri vinnuvika auðveldi samræmingu vinnu og einkalífs og minnkað álag á heimili. Marktækur munur mælist á vinnuálagi, starfsanda og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Mælingar benda einnig til þess að styttri vinnuvika komi ekki niður á afköstum starfsfólks og að ávinningurinn sé mikill, bæði í bættri líðan og bættum samskiptum bæði í vinnu og heima.

Þátttakendur í verkefninu nefna að með styttingu hafi starfsánægja aukist og starfsandi batnað. Minna verður um skrepp á vinnutíma og þeir sem eiga börn á leikskólaaldri upplifa meira svigrúm. Einnig nefna þátttakendur bætta andlega og líkamlega heilsu og að samræming vinnu og einkalífs valdi minni togstreitu. 

Stytting vinnuviku virðist auka þátttöku karla í ábyrgð á heimilisstörfum og barnauppeldi. Karlar upplifðu ánægju með að taka meiri þátt í uppeldi barna sinna og töldu að gæðastundum fjölskyldu hafi fjölgað. Konur virðast þó ennþá bera frumábyrgð á heimilisstörfum og barnauppeldi og fundu lítinn mun á umfangi húsverka við það að stytta vinnuvikuna. Konur eru hins vegar líklegri til þess að minnka við sig vinnu til þess að sinna börnum og heimili sem hefur áhrif á laun þeirra og framgang í starfi.

Stytting vinnuvikunnar er mikilvægt innlegg inn í komandi kjarasamninga. Framhald verkefnisins ræðst því af því hvort að sátt náist í samningum um að stytta vinnuvikuna. Stytting vinnuvikunnar er góð leið til þess að auka jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og inni á heimilinu.

Ég vona að fyrirtæki á hinum almenna vinnumarkaði sláist í för með hinu opinbera og taki þátt í þessum breytingum, vinnum minna, og allir vinna!

Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×