Sænskir fjölmiðlar greindu frá því í kvöld að hin grunaða á að hafa stungið hina sautján ára stúlku ítrekað með hníf, inni á stuðningsheimili fyrir ungt fólk þar sem þær dvöldu báðar.
Lögreglu barst tilkynning um málið skömmu fyrir klukkan 15 að staðartíma í gær, en stuðningsheimilið, sem rekið er á vegum sveitarfélagsins, er að finna í hverfinu Torsred. Eldri stúlkan var þá flutt alvarlega slösuð á sjúkrahús þar sem hún lést af sárum sínum.
Skýr mynd
Lögregla telur sig hafa nokkuð skýra mynd af því sem gerðist, en hyggst ekki greina frá því að svo stöddu, meðal annars vegna ungs aldurs stúlkunnar.
Stúlkan sem grunuð er um verknaðinn er nú í umsjá félagsmálayfirvalda í Svíþjóð. Yfirheyrslur hafa staðið í allan dag þar sem rætt hefur verið bæði við hina grunuðu og sjónarvotta.