

Bara misskilningur um aldursgreiningar?
Það er aðkoma HÍ að þessum rannsóknum sem málið snýst um af hálfu stúdenta; hvort að skólinn eigi að standa fyrir þeim líkamsrannsóknum sem eru nýttar til ákvörðunar aldurs hælisleitenda. Það er enginn misskilningur um það, nema kannski hjá Útlendingastofnun? Þá er tilefni til að tjá Lilju að undirrituð og þeir stúdentaráðsliðar sem ég tala fyrir hafa að sjálfsögðu kynnt sér málið í þaula.
Að Útlendingastofnun grípi til greinarskrifa í tilefni af grein minni og afstöðu Stúdentaráðs er áhugavert, enda er það alfarið á ábyrgð Háskóla Íslands ef rannsóknirnar munu fara fram á vegum skólans. Þetta hef ég hef ítrekað bent á og þá fyrst í september á fundi Stúdentaráðs HÍ. Samkvæmt lögum um háskóla er skýrt að háskólar ráða skipulagi starfsemi sinnar og ákveða hvernig henni er best fyrir komið. Útlendingastofnun eða nokkur önnur ríkisstofnun getur ekki sagt skólanum fyrir um hvaða starfsemi skuli fara fram innan skólans heldur er ákvörðunin alfarið í höndum HÍ.
Vernd eða ekki vernd:
Í grein Lilju Rósar Pálsdóttur, segir hún: „Að niðurstaða aldursgreiningar ráði því hvort einstaklingi sé veitt vernd en ekki þörfin fyrir vernd er misskilningur sem víða hefur borið á í umræðunni.“ Í grein minni frá 1. nóvember sl. er hvergi að finna fullyrðingu þess efnis að aldursgreiningin ráði úrslitum málsins. Enginn hefur haldið öðru fram en að börn njóti ólíkrar réttarverndar en fullorðnir í gildandi lagaumhverfi og að aldur skipti máli við ákvörðun um að veita hæli hérlendis. Það er ekki misskilningur um þessi atriði af hálfu stúdenta. Málið snýst um hvort að Háskóli Íslands skuli standa fyrir vafasömum rannsóknum sem nýttar eru til ákvörðunar aldurs hælisleitenda. Þess vegna hafa stúdentar fjallað um málið og vísað til laga, vísindasiðareglna og yfirlýsinga mannúðarsamtaka.
Hvað ætlar HÍ að gera?
Afstaða stúdenta hefur gengið út á með hvaða hætti HÍ er að taka sér stöðu í málefnum hælisleitenda hérlendis. Á sama tíma og LÍN hefur breytt sínum reglum og aukið aðgengi að námi, á sama ári og ræðumenn á útskrift HÍ tala fyrir því að skólinn eigi að taka vel á móti þeim sem leita til landsins, á meðan mannúðarsamtök hafa ályktað gegn þeim aðferðum sem HÍ vill nú semja um að taka þátt í, er virkilega til skoðunar innan HÍ að skólinn taki sér hlutverk sem hefur áhrif á afgreiðslu mála meðal þessa viðkvæma hóps. Skoðun stúdenta er að slíkt verkefni samrýmist ekki siðareglum HÍ.
Höfundur er oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði
Skoðun

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar

Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki
Gunnar Ásgrímsson skrifar

Vorbókaleysingar
Henry Alexander Henrysson skrifar

Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps?
Snorri Másson skrifar

Liðveisla fyrir öll
Atli Már Haraldsson skrifar

Réttur til endurtektarprófa: Jafnræði í námi fyrir alla stúdenta
Vera Mist Magnúsdóttir,Guðlaug Eva Albertsdóttir skrifar

Að standa við stóru orðin
Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Aðför að landsbyggðinni – og tilraun til að slá ryki í augu almennings
Ingibjörg Isaksen skrifar

Deyr mjólkurkýrin ef eigandi hennar fær eitt viðbótar mjólkurglas?
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Kynlíf veldur einhverfu: Opið bréf til Háskóla Íslands og fjölmiðla
Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Margrét Oddný Leópoldsdóttir skrifar

Ég virði þig og þín mörk, virðir þú mig og mín mörk ?
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar

„Þessu er alltaf lofað fyrir kosningar en alltaf svikið“
Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Þjóðaröryggi að vera aðildarríki að Evrópusambandinu
Jón Frímann Jónsson skrifar