Saka Rússa um að hafa hertekið þrjú skip Birgir Olgeirsson skrifar 25. nóvember 2018 19:56 Vladimir Putin, forseti Rússlands. Vísir/Getty
Úkraínsk yfirvöld hafa sakað Rússa um að skjóta á og hertaka nokkur skip úkraínskra yfirvalda undan strönd Krímskaga.Greint er frá þessu á vef fréttastofu breska ríkisútvarpsins BBC en Reuters sagði frá því fyrr í dag að Rússar hefðu stöðvað þrjú skip á vegum úkraínska sjóhersins sem voru á leið til Asovshafsins í gegnum Kerch-sundið. Eru Rússarnir sagðir hafa komið stóru flutningaskipi fyrir undir brú sem er á yfirráðasvæði Rússa. Hafa ásakanir gengið á milli ríkjanna um ógnandi hegðun. BBC segir úkraínsk stjórnvöld nú saka rússnesk stjórnvöld um að hafa hertekið tvö herskip og dráttarbát. Eru tveir skipverjar sagðir hafa meiðst í átökum. Spenna hefur aukist í samskiptum ríkjanna vegna hafsvæðisins við Krímskaga, sem Rússar hertóku árið 2014. Rússar höfðu sakað Úkraínumenn um að hafa farið ólöglega inn á rússneskt hafsvæði. Úkraínski sjóherinn segir í yfirlýsingu að siglt hafi verið á herskipin Berdyansk og Nikopol þegar reynt var að snúa þeim í burtu. Dráttarbáturinn hafi verið neyddur til að stöðva för. Rússar höfðu áður sent tvær orrustuþotur og tvær þyrlur til að fylgjast með för úkraínsku skipanna.
Rússland Úkraína Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Erlent Fleiri fréttir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Sjá meira