Trúboði drepinn af einangruðum eyjaskeggjum í Indlandshafi Atli Ísleifsson skrifar 21. nóvember 2018 13:05 Áætlað er að eyjaskeggjar telji milli fimmtíu og 150. Mynd/Indverska strandgæslan
Bandarískur ferðamaður er sagður hafa látið lífið eftir að hafa orðið fyrir árás meðlima einangraðs ættbálks á eyju í Indlandshafi. Sjómenn eiga að hafa flutt ferðamanninn til hinnar afskekktu eyju Norður-Sentinel, austur af Indlandi, þar sem eyjaskeggjar eru sagðir hafa skotið hann með örvum og skilið lík hans eftir á ströndinni.BBC hefur eftir indverskum fjölmiðlum að ferðamaðurinn hafi verið kristinn trúboði, John Allen Chau að nafni. Íbúar á eyjunni hafa lifað þar einangraðir og hafa indversk stjórnvöld lagt bann við það að eiga við þá samskipti. Áætlað er að eyjaskeggjar telji milli fimmtíu og 150. Lögregla segja sjö sjómenn hafa verið handtekna fyrir að hafa flutt trúboðann til eyjarinnar með ólöglegum hætti. Er talið að Chau hafi áður sótt eyjuna heim, fjórum eða fimm sinnum, með aðstoð sjómannanna.Þriggja ára fangelsi Stjórnvöld á Indlandi gerðu það ólöglegt árið 2017 að taka myndir eða myndbönd af eyjaskeggjum. Eiga þeir sem gera slíkt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. Fréttaritari BBC segir að Sentinel-ættbálkurinn hafi lifað einangraður frá umheiminum í um 60 þúsund ár. Árið 2006 var greint frá því að tveir sjómenn hafi verið drepnir af eyjaskeggjum eftir þeir stigu fæti á eyjunni.
Asía Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira