„Mér fannst mjög mikilvægt að fara í þetta viðtal og senda skýr skilaboð. Þetta mál hefur verið mér afskaplega þungbært,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra eftir áhrifaríkt viðtal í Kastljósi í gær þar sem hún sagði þingmenn Miðflokksins, sem höfðu uppi gróf ummæli í hennar garð á bar í síðustu viku, vera ofbeldismenn sem ættu ekki að hafa dagskrárvald í landinu.
„Ég verð þó að nefna að ég hef fundið fyrir miklum stuðningi frá félögum mínum í þinginu, úr flestum flokkum, og er þakklát fyrir þann stuðning,“ útskýrir Lilja. Hún segir ummæli þingmanna Miðflokksins sér bæði persónuleg og fagleg vonbrigði.
„Við Sigmundur höfum verið persónulegir vinir í gegnum tíðina og unnið náið saman. Auðvitað er sárt að heyra vini manns og samstarfsmenn tala með þessum hætti. En ummælin dæma sig sjálf. Ég upplifði þetta sem ofbeldi í minn garð og á enn eftir að sjá raunverulega iðrun frá þeim sem í hlut áttu.“
Sjá einnig: Miðflokksmennirnir ofbeldismenn sem eigi ekki að stýra ferðinni
Aðspurð um framhaldið, hvernig samstarfið muni ganga fyrir sig héðan í frá segir Lilja að allt sé óráðið. „Ég ætla mér allavega að halda áfram að vinna mína vinnu, í þágu fólksins í landinu.“
Ljóst er að margir sátu límdir við skjáinn yfir viðtalinu og viðbrögðin á samfélagsmiðlum létu ekki á sér standa að því loknu. „Tilfinningaríkur nagli. Það er eitursterk blanda,“ sagði Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra á Facebook.
„Menntamálaráðherra með lexíu dagsins í góðu viðtali,“ sagði Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra. „Þú talar fyrir hönd allra kvenna og alls siðaðs fólks í þessu viðtali! “ sagði Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu
Þakkar stuðning þvert á flokkana

Tengdar fréttir

Tilbúinn að mæta eiðsvarinn fyrir siðanefnd og segja frá því sem hann hefur heyrt
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir að ef siðanefnd vilji kalla eftir upptökum til að taka fyrir segist hann skilja það sem svo að nefndin vilji fá allar upptökur af samtölum þingmanna sem til eru.


Siðanefndarinnar bíður meiri vinna en búist var við
Vinna siðanefndar Alþingis vegna Klaustursmálsins svokallaða er umfangsmeiri en formaður nefndarinnar gerði ráð fyrir.