Skoðun

Sök bítur sekan

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Annálað samtal tíu prósenta þingheims á Klaustri fór um myrkan huga þeirra sem þar sátu, en fæst sem þessum kjörnu fulltrúum fór á milli þolir dagsljósið. Umræðurnar voru þess eðlis að varla hefur verið þægilegt fyrir þingmennina að mæta til vinnu daginn eftir að þær voru birtar, hvað þá í árlegan gleðskap Alþingis á Bessastöðum.

Auðvitað er óheimilt að taka upp samtöl að fólki forspurðu. Um það er ekki deilt. Það breytir ekki því að það sem var sagt, var sagt. Umræðurnar sýna þá sem hæst höfðu í skelfilegu ljósi.

Ekkert virðist hafa verið heilagt eða undanskilið, og raunar sætir furðu að þingmönnunum hafi tekist að snerta á svo mörgum subbumálum á ekki lengri tíma. Óskandi væri að störf Alþingis með jákvæðari formerkjum væru jafn skilvirk.

Eins og oft áður er gagnlegt að reyna að setja sig í spor þeirra sem við borðið sátu. Fólk talar oft á hispurslausan hátt í góðra vina hópi. Flestir hafa vafalaust látið orð falla í hálfkæringi eða án þess að hugur fylgi máli við slíkar kringumstæður.

En þrátt fyrir samhengislaus gífuryrðin, hálfkæringinn og háðsglósurnar er rauður þráður í talsmátanum. Groddaleg viðhorf skína í gegn. Háðsglósum í garð fatlaðra og samkynhneigðra er fleygt eins og í framhjáhlaupi og bæta gráu ofan á svart.

Kvenfyrirlitning er meginstefið. Þingmennirnir skilgreina samstarfskonur sínar eftir útliti, gera þeim upp óeðlilegar hvatir og kalla þær öllum illum nöfnum. Oftast með kynferðislegri skírskotun.

Þessi talsmáti er algerlega á skjön við orðsporið sem þingmennirnir rembast við að skapa sér, allsgáðir, í viðurvist fjölmiðla. Af samtalinu að dæma sýna þeir þá hlið einungis þegar kveikt er á upptökuvélunum. Fyrir tvo reynslumestu þingmennina í hópnum er remban sérlega vandræðaleg, annar fékk verðlaun fyrir framlag til jafnréttismála þegar hann sat í forsætisráðuneytinu og hinn fór sem utanríkisráðherra mikinn á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í sama málaflokki.

Eftir að upptakan varð opinber hafa verið kallaðir til alls kyns sérfræðingar. Margir þeirra tala um virðingu Alþingis og álitshnekki sem þingið hefur beðið. En málið þarf enga stjórnmálafræðinga til að skýra frá. Þingmennirnir bera sjálfir ábyrgð á orðum sínum en kollegar þeirra ekki. Þá sjálfa setur niður og enga aðra. Að varpa þessu yfir á allt þingið drepur málinu á dreif. Sökin á að bíta þann seka.

Á almennum vinnumarkaði væri hátterni sexmenninganna sennilega brottrekstrarsök. Þingmönnum getur hins vegar enginn sagt upp nema kjósendur á fjögurra ára fresti. Þótt tveir hafi verið reknir úr flokki sínum og aðrir tveir sendir í leyfi hefur enginn sagt af sér þingmennsku.

Þeir virðast ótrauðir ætla að mæta örlögum sínum í næstu kosningum. Það ætti að verða þungur róður. Orð eiga að hafa afleiðingar.

En við erum ýmsu vön.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×