AC Milan gefst upp í Zlatan eltingarleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. desember 2018 18:00 Zlatan Ibrahimovic spilar ekki fótbolta næstu mánuði. Vísir/Getty
Zlatan Ibrahimovic fer ekki í neina Evrópureisu eftir áramót og fær því nægan tíma til að undirbúa sig fyrir næsta tímabil með Los Angeles Galaxy. AC Milan dreymdi um að fá Zlatan Ibrahimovic til sín í janúar en nú hefur félagið gefist upp í þeim eltingarleik. Leonardo, íþróttastjóri AC Milan, er að reyna að styrkja liðið sitt fyrir seinni hluta tímabilsins og ofarlega á blaði var að fá Zlatan Ibrahimovic aftur til félagsins. Leonardo segir að nú séu þær dyr lokaðar. „Zlatan lofaði forráðamönnum Los Angeles Galaxy því að hann færi ekkert ef þeir kæmu til móts við kröfur hans. Það hafa þeir nú gert,“ sagði Leonardo í viðtali eftir leik AC Milan um helgina. Þar hefði verið gott að vera með Zlatan Ibrahimovic í framlínunni en leikurinn endaði með markalausu jafntefli. Zlatan Ibrahimovic skoraði 56 mörk í 85 leikjum með AC Milan frá 2010 til 2012 en þá var Svíinn þrítugur. Hann hélt upp á 37 ára afmælið sitt á dögunum. Tímabilið hjá Los Angeles Galaxy kláraðist í október og byrjar ekki aftur fyrr en í mars. AC Milan var að reyna að fá Zlatan lánaðan í nokkra mánuði en nú er ljóst að ekkert verður af því. Zlatan Ibrahimovic átti fínt fyrsta tímabil með Los Angeles Galaxy þótt liðinu hafi mistekist að komast í úrslitakeppnina. Zlatan skoraði 22 mörk og gaf 7 stoðsendingar. í 27 leikjum á tímabilinu.
Ítalski boltinn Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Fleiri fréttir Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Sjá meira