Salah var maður helgarinnar Kristinn Páll Teitsson skrifar 10. desember 2018 11:00 Mohamed Salah vann gullskóinn í vor vísir/getty
Egyptinn Mohamed Salah hristi af sér allt slen og reyndist hetja Liverpool-manna í 4-0 stórsigri á Bournemouth um helgina. Handhafi gullskósins og eigandi markametsins í tuttugu liða úrvalsdeildinni skoraði þrennu í leiknum en þetta var í fyrsta sinn síðan 17. mars síðastliðinn sem hann skorar meira en eitt mark í sama leiknum í ensku úrvalsdeildinni. Salah hafði heppnina með sér í fyrsta markinu sem hefði ekki átt að standa þar sem hann var rangstæður en hann var vakandi og stökk á frákastið eftir skot Roberto Firmino eins og framherja sæmir. Hann gerði vel í öðru markinu þegar hann stóð af sér groddalega tæklingu Stevens Cook sem virtist stíga á hásinina á Salah en hann lék á varnarmann Bournemouth og lagði boltann í netið. Salah fullkomnaði síðan þrennuna þegar hann komst inn í sendingu Cook, lék tvívegis á Asmir Begovic í marki Bournemouth og setti boltann rólegur í netið. Þriðja mark hans um helgina var tíunda markið hans í ensku úrvalsdeildinni í vetur og deilir hann efsta sætinu í baráttunni um gullskóinn með Pierre-Emerick Aubameyang. Hann virðist vera að finna taktinn betur og betur með hverjum leik sem líður og eru það frábærar fréttir fyrir Liverpool-menn fyrir næstu vikur þar sem liðið á erfiða leiki fram undan.
Birtist í Fréttablaðinu Enski boltinn Mest lesið Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Fékk egg í andlitið á blaðamannafundi: „Skítuga eggjakakan þín“ Sport „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Fótbolti Dagskráin í dag: Rashford, Bónus deild karla og margt fleira Sport Sjóðandi heitur Curry gaf mömmu sinni treyjuna eftir leik Körfubolti Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg Handbolti Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Handbolti Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Enski boltinn Fleiri fréttir Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Echeverri má loks spila fyrir Man City „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Sjá meira