Trump og Kim funda í annað skiptið Andri Eysteinsson skrifar 18. janúar 2019 19:39 Fundur Kim og Trump í júní var sögulegur enda í fyrsta skipti sem forseti Bandaríkjanna og leiðtogi Norður-Kóreu hittust. AP/Susan Walsh
Hvíta húsið greindi frá því í kvöld að Bandaríkjaforseti, Donald Trump, hygðist funda að nýju með leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong Un í lok næsta mánaðar. Greint var frá fundinum eftir fund Trump með sendiboða Norður-Kóreu. AP greinir frá.Talskona Hvíta hússins, Sarah Sanders, sagði við fjölmiðla að forsetinn hafi fundað með Kim Yong Chol í um níutíu mínútur um skipulagningu fundar leiðtoganna og um kjarnorkumál.Sanders sagði forsetann spenntan fyrir fundinum en tilkynnt verður um nákvæma staðsetningu og dagsetningu fundarins síðar. Samkvæmt frétt BBC um fundarhöld sendiboða Norður Kóreu við ráðamenn í Washington D.C. er Asíuríkið Víetnam nefnt í þessu samhengi. En samkvæmt frétt BBC er gert ráð fyrir heimsókn Kim Jong Un þangað í febrúar. Trump og Kim funduðu fyrst í Singapúr í júní síðastliðnum. Talið er að litlu hafi verið áorkað á þeim fundi en nú er stefnt að frekari viðræðum um afvopnun Norður-Kóreu sem búa yfir töluverðu magni af kjarnorkuvopnum.
Bandaríkin Donald Trump Norður-Kórea Víetnam Mest lesið Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Erlent Blöskrar biðlaunin: „Hvernig segi ég mig úr þessu drasli?“ Innlent Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu Innlent Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Innlent Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Innlent Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Erlent Tala látinna komin yfir þúsund Erlent Mengun úr jarðvegi orsakaði skrýtið bragð af neysluvatni Innlent Tímaspursmál hvenær Bandaríkin snúi sér að Íslandi Innlent Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Fyrsta árás Ísraelshers í Líbanon eftir vopnahlé Óttast að mörg hundruð séu látin Áhöfn kafbátsins sem sökk í Rauðahafi yfirheyrð Albanese boðar til þingkosninga 43 saknað eftir 7,7 stiga skjálfta í Mjanmar Beinir spjótum sínum að Smithsonian og „sögufölsunum“ Segir gömlu sambandi Kanada við Bandaríkin lokið Lagður inn á sjúkrahús vegna aukaverkana krabbameinsmeðferðar Ísraelar kvörtuðu yfir „Signalgate“ Ný ríkisstjórn í höfn á Grænlandi Nýjum drögum frá Trump lýst sem ránstilraun Ætlar að fjölga hermönnum á norðurslóðum Myndaði segulljós Neptúnusar í fyrsta skipti Sex taldir af eftir kafbátaslys Biður til Guðs að Bandaríkin gefi ekki eftir Segjast ræða um að opna aftur Nord Stream-gasleiðslurnar Hundruð tapa milljónum í viskísvikamyllu Samþykkti umdeilt bann við hælisumsóknum Suðurkóresk börn send úr landi eins og „farangur“ Hyggst leggja 25 prósent toll á allar innfluttar bifreiðar Trump um Grænland: „Við verðum að eignast þetta land“ Rétta yfir Bolsonaro fyrir valdaránstilraun Sagði nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast Sjá meira