Hér er tekist á um hvort leyfa eigi innflutning á hráu kjöti en hingað til hefur það orðið að vera frosið sem læknar telja öryggisatriði út frá pestum o.fl. sem borist geta. ESB segir okkur skylduga út frá samningum að taka við hráu kjöti og hafna enn öllum rökum vísindamanna í læknisfræði.
Stefnumótun með bændunum okkar
Eru þetta ekki dálítil forréttindi að eiga matarborð sem býður upp á úrvalsvöru sem sker sig úr í allri veröldinni? Þarna á ég við allt kjöt framleitt hér hvort það er naut, svín, kjúklingur eða kalkúnn svo ekki sé talað um blessað lambið sem er gullinmura og gleymmérey, villibráð. Og enn fremur allt grænmeti frá móður jörð og úr gróðurhúsum landsins. Nú þegar umræða um sjúkdóma og lyfjaóþol skekur heimsbyggðina er þá ekki best að fagna þessari stöðu okkar og verja hana.Það hefur enginn, hvorki forsendur né rétt til þess að tala þessi varnaðarorð niður sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur sent frá sér og alls ekki Félag atvinnurekenda á Íslandi eða Verslunarráðið. Væri ekki rétt við þessar aðstæður að setja sér markmið um að framleiða sem mest af kjöti, mjólkurvörum og grænmeti í landinu okkar. Hollur er heimafenginn baggi auk þess sem hann sparar kolefnisspor.
Hér á Íslandi stunda bændurnir okkar ábyrga matvælaframleiðslu. Víða um heim er pottur brotinn í þeim efnum þótt löndin séu misvel stödd, en það er alls ekki sama kjöt og kjöt, grænmeti og grænmeti. Hvernig væri að við sem þjóð settum okkur markmið t.d. til næstu tíu ára að bændurnir okkar anni innanlandsþörfinni á kjöti, mjólkurvörum og grænmeti? Ríkisstjórnin með Bændasamtökum yrði að leiða svona stefnumótun og aðgerðir þeim tengdar en sjálfsagt er að sem flestir komi að verkefninu svo sem Alþingi, Samtök atvinnulífsins, verkalýðshreyfingin, Félag atvinnurekenda, Samtök verslunar og þjónustu, Neytendasamtökin, Landlæknisembættið o.fl.
Við eigum fátt í þessu landi sem við erum jafn stolt af og matvælunum frá sjó og landi nema væri fegurð landsins. Ísland og Noregur eru löndin sem uppfylla Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna þegar - til hamingju íslenskir neytendur.