Og, eins og fram hefur komið, sex verk eftir Gunnlaug Blöndal en tvö þeirra hafa heldur betur komið listaverkaeign bankans á kortið eftir að upplýstist að bankinn hafi, meðal annars að teknu tilliti til ráðleggingar frá Jafnréttisstofu, tekið tvö þeirra niður. Sá ráðstöfun hefur komið mörgum í opna skjöldu enda Gunnlaugur eftirlæti hinnar íslensku borgarastéttar um áratugaskeið. Verk eftir hann sem eru í eigu Seðlabankans bera titlana: Kona heita þrjú þeirra og væntanlega tvö þeirra sem hefur komið einhverjum starfsmönnum bankans úr jafnvægi því varla eru það verkin „Burstabær – fólk og hestar“, „Bátur – Snæfellsjökull“ eða „Siglufjörður“.
Óðurinn til krónunnar eftir Rósu
Þá hefur einhver bankamaður verið svo forsjáll að tryggja bankanum átta verk, eða grafíkseríu, eftir Rósu Ingólfsdóttur, sem er líklega þekktasta sjónvarpsþula landsins fyrr og síðar. Rósa hefur reyndar haldið fram þeirri umdeildu skoðun að karlmenn eigi að stjórna, en sú skoðun hennar olli nokkru uppnámi í samfélaginu. Kannski hefur titill verksins höfðað sérstaklega til bankamannsins. Í tölublaði Dags frá 1. ágúst 1989 er fjallað um sýninguna:
Vel gengið um safnið
Vísir ræddi við Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóra Seðlabankans, en hann vill ekki greina nánar frá því hvaða verk Gunnlaugs Blöndals sem eru svo umdeild, enda stendur til að sýna þau sérstaklega á Safnanótt 8. febrúar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði á þingi í vikunni að hún teldi ástæðulaust að óttast að ekki væri í færum Seðlabankans að annast þessi verk. Og líklega er það laukrétt hjá forsætisráðherranum.
Safnið að stofni til frá gamla Landsbankanum
Hann útskýrir jafnframt að talsverðan hluta af verkanna hafi Seðlabankinn fengið þegar hann „skildi“ við Landsbankann.„Seðlabankinn var stofnaður 1961. Frá 1957 var Landsbankanum skipt í tvo hluta, seðlabankahluta og viðskiptabankahluta. Áður var seðlabankadeildin hluti Landsbankans. Við vorum til húsa með Landsbankanum til 1987, þannig að nokkur hluti af verkunum þegar flutt var í húsnæði Seðlabankans kom úr hinu sameiginlega húsnæði með Landsbankanum. Keypt voru verk áfram en síðustu ár hefur það verið talsvert minna og nokkur ár ekki neitt. Einhver samvinna hefur verið við söfn varðandi sýningu á verkum og fleira slíkt hefur komið til tals.“

„Mörg þessi málverk voru hluti gjafar sem einn af fyrstu bankastjórum Seðlabankans, Jón Maríusson, lét Seðlabankann fá sem arf eftir sig. Í þeim arfi var einnig stór íbúð við Ægissíðu,“ segir Gísli sem virðist þekkja vel til þess máls: „Jón var maður ókvæntur alla ævi og barnlaus og gaf allar eigur sínar bankanum eftir sinn dag.“
Bókfært mat í reikningum 100 milljónir króna
Erfitt er að meta safnið, þarna er um ómetanleg listaverk að ræða.„Málverkaeignin hefur verið bókfærð í reikningum Seðlabankans en það mat er sjálfsagt ekki það sama og markaðsvirði eða tæplega 100 milljónir króna. Það er hluti af bókfærðum eignum í söfnum bankans sem er ríflega tvöföld sú fjárhæð. Hluti þess er myntsafn bankans,“ segir Stefán Jóhann. Ljóst er að það hlýtur að teljast varlega áætlað að teknu tilliti til markaðsverðs en um er að ræða 320 verk.

Listaverk í eigu Seðlabankans
Nafn Heiti
Alda Lóa Leifsdóttir Odoo
Anna G. Torfadóttir [Afstrakt]
Anna G. Torfadóttir „Til Serra“
Anna Guðrún Líndal Leikur
Anna Guðrún Líndal Foss á Síðu
Anna Sigríður Sigurjónsdóttir „Fræ“
Antonio Hervaz Amescua Losti
Arnesen, Vilhelm Reykjavík
Arngunnur Ýr Gylfadóttir „Himinn nr. 12“
Arngunnur Ýr Gylfadóttir „Himinn nr. 24“
Atli Már Árnason Græn rökkvuð heiði
Atli Már Árnason Tveggja tal
Árni Rúnar Sverrisson [Afstrakt]
Ásgerður Búadóttir Dögun
Ásgrímur Jónsson [Landslag]
Ásgrímur Jónsson [Þingvellir]
Ásgrímur Jónsson „Öxarárfoss“
Ásmundur Sveinsson [Kona]
Ásmundur Sveinsson [Galdrakarl]
Ásmundur Sveinsson
Ásmundur Sveinsson Móðir mín í kví kví
Baltasar B. Samper Jón G. Maríasson
Baltasar B. Samper Vilhjálmur Þór
Baltasar B. Samper Svanbjörn Frímannsson
Barbara Árnason [Landslag]
Benedikt Gunnarsson [Þingvellir]
Bergljót Kjartansdóttir „Hamadan“
Birgir Andrésson „Tindar í Öxnadal“
Björg Atla Álfakirkja
Björg Þorsteinsdóttir Í ljósaskiptunum I
Björg Þorsteinsdóttir Í ljósaskiptunum III
Björn Birnir Jörð
Bragi Ásgeirsson Tímaskil
Bragi Ásgeirsson [Blátt andlit]
Bragi Ásgeirsson Hún
Bragi Hannesson Á Holtavörðuheiði
Bryndís Bolladóttir KULA hljóðinnsetning
Brynjólfur Þórðarson [Almannagjá]
Daði Guðbjörnsson Gullgjörningur
Edda Guðmundsdóttir [Blóm í könnu]
Edda Jónsdóttir Vetur
Eggert Guðmundsson [„Sænska“ séð yfir Arnarhól]
Einar G. Baldvinsson [Á sjó - sjómenn]
Einar Hákonarson Birgir Ísleifur Gunnarsson
Einar Hákonarson Jón Sigurðsson
Einar Hákonarson „Að vestan“
Einar Hákonarson Ævintýrabátur
Eiríkur Smith Haustfjöll
Eiríkur Smith Guðmundur Hjartarson
Eiríkur Smith Holt
Eiríkur Smith Vetur í Esjunni
Eiríkur Smith Éljasorti
Eiríkur Smith Tómas Árnason
Eiríkur Smith Geir Hallgrímsson
Eiríkur Smith Jóhannes Nordal
Elías B. Halldórsson Á miðum
Elías B. Halldórsson Í veröld, sem var
Elías B. Halldórsson Grásleppuvor
Elías B. Halldórsson Þingfundur
Elías B. Halldórsson Leysing
Elías B. Halldórsson Vorvindar
Erla Björk Axelsdóttir Vífilsfell
Erla Þórarinsdóttir „Las Manos“
Erlingur Jónsson Stjáni blái
Ernst, Werner Skógur
Ernst, Werner Jón G. Maríasson f 1898
Ernst, Werner Jón G. Maríasson
ERRÓ Samira
Eva Benjamínsdóttir Óskin
Eva Benjamínsdóttir Björg
Eyjólfur Einarsson Nótt
Finnur Jónsson [Þingvellir]
Finnur Jónsson [Landslag]
Finnur Jónsson Bátur á strönd
Georg Guðni Hauksson Eiríksjökull
Gísli Sigurðsson [Huldufólk]
Gísli Sigurðsson Jörvagleði
Gísli Sigurðsson Komið hausthljóð í vindinn
Gréta Mjöll Bjarnadóttir Og sú gullna
Guðbergur Auðunsson Ingólfshöfði
Guðjón Bjarnason Non Caryatid Grata (Andsúlur)
Guðmunda Andrésdóttir Myrkir dagar
Guðmundur Björgvinsson Horft í kvikuna
Guðmundur Einarsson Sölvhóll
Guðmundur Karl Ásbjörnsson [Grindavík]
Guðmundur Karl Ásbjörnsson Prestahnjúkur
Guðrún H. Jónsdóttir Öðruvísi ávextir
Guðrún H. Jónsdóttir Spakar hænur
Gunnar Eiríkur Eiríksson [Seðlabankahús]
Gunnar Örn Gunnarsson Skepnan
Gunnlaugur Blöndal [Burstabær - fólk og hestar]
Gunnlaugur Blöndal [Bátur - Snæfellsjökull]
Gunnlaugur Blöndal [Kona]
Gunnlaugur Blöndal [Siglufjörður]
Gunnlaugur Blöndal [Kona]
Gunnlaugur Blöndal [Kona]
Gunnlaugur Scheving [Hús við sjó]
Gunnlaugur Scheving [Blóm í könnu]
Gunnlaugur Scheving Sildebåde
Gunnlaugur Scheving [Kýr á beit]
Gunnlaugur Scheving Heybandslest
Gunnlaugur Scheving [Síld]
Gunnlaugur Scheving [Síld á bretti]
Gunnlaugur Scheving [Landslag]
Gunnlaugur Scheving Konur að svíða hausa
Gunnlaugur Scheving [Sjómaður á hákarlaveiðum]
Halla Haraldsdóttir [Glerverk]
Halldór Ásgeirsson [Afstrakt]
Halldór Pétursson [Hannes Hafstein]
Halldór Pétursson [Hallgrímur Pétursson]
Halldór Pétursson [Sigurður Nordal]
Halldór Pétursson [Halldór Laxnes]
Halldór Pétursson [Matthías Jockumsson]
Halldór Pétursson [Jón Sigurðsson]
Halldór Pétursson [Jónas Hallgrímsson]
Halldór Pétursson [Tryggvi Gunnarsson]
Halldór Pétursson [Björn Gunnlaugsson]
Haraldur Ingi Haraldsson „Kefli/strengur“
Haukur Clausen Steingrímur Hermannsson
Heding, Erik [Búgarður]
Helga Ármannsdóttir Hrund
Helga Egilsdóttir Ljósaskipti
Helgi Gíslason Jóhannes Nordal
Helgi Þorgils Friðjónsson [Afstrakt]
Hjörleifur Sigurðsson Keilir á Reykjanesi
Hjörleifur Sigurðsson Kleifarvatnið - djúpt og blátt
Hjörleifur Sigurðsson Frá Sylling í Lier
Hjörleifur Sigurðsson Feikn
Hjörleifur Sigurðsson Kjarnar
Hringur Jóhannesson Vörðuð leið
Hringur Jóhannesson Sólbrúnir baggar
Hulda Halldórsdóttir [Afstrakt]
Hulda Halldórsdóttir [Svanir]
Hulda Hákon [Blá blóm]
Húbert Nói Jóhannesson [Landslag]
Hörður Ágústsson [Afstrakt]
Ingválv av Reyni [Landslag]
Jóhann Briem Brjánsbardagi
Jóhann Briem [Kýr og kálfur á beit]
Jóhann Briem [Teikningar við Eddukvæði]
Jóhann G. Jóhannsson „Hughrif landslags IV“
Jóhanna Bogadóttir „Vor“
Jóhannes Jóhannesson Við gluggann
Jóhannes Jóhannesson [Afstrakt]
Jóhannes S. Kjarval [Þingvellir]
Jóhannes S. Kjarval [Landslag]
Jóhannes S. Kjarval [Karl og kona við sveitabæ]
Jóhannes S. Kjarval [Atvinnuvegirnir/Morgun lífsins]
Jóhannes S. Kjarval [Búrfellsárfoss]
Jóhannes S. Kjarval [Þrjú andlit]
Jóhannes S. Kjarval [Landslag]
Jóhannes S. Kjarval [Blóm og andlit í vasa í landslagi]
Jóhannes S. Kjarval [Sjálfsmynd]
Jóhannes S. Kjarval Enn grjót
Jóhannes S. Kjarval [Lómagnúpur]
Jón Axel Björnsson [Maður og kona]
Jón Gunnar Árnason Flaug
Jón Hróbjartsson [Ísafjörður]
Jón Stefánsson Potteplante röd Bagg.
Jón Stefánsson Sommerdags Allinge
Jón Stefánsson [Landslag]
Jón Stefánsson [Hekla]
Jón Stefánsson [Túlipanar í vasa]
Jón Thor Gíslason Tvíburaglys
Jón Þorleifsson [Þingvellir]
Jónas Guðmundsson [Götumynd - Lækjargata]
Jónas Guðmundsson [Fiskiskip]
Júlíana Sveinsdóttir [Uppstilling]
Jörundur Pálsson [Esjan]
Karl Jóhann Jónsson Einstök padda
Karl Kvaran [Afstrakt]
Karl Kvaran Fáninn
Karl Kvaran [Afstrakt]
Karl Kvaran [Afstrakt - rautt, svart, blátt, hvítt]
Karl Kvaran [Afstrakt - blátt, appelsínugult]
Karl Kvaran [Afstrakt]
Karl Kvaran [Afstrakt]
Karl Kvaran „Hópsál bláfjólanna“
Kári Eiríksson Úthagi
Kjartan Guðjónsson Þeir börðust lengi nætur -
Kjartan Guðjónsson Gömlu hjónin og báturinn
Kristbergur Pétursson [Afstrakt]
Kristbergur Pétursson [Afstrakt]
Kristinn Morthens [Þingvellir]
Kristín J. Þorsteinsdóttir „Bón“
Kristín Jónsdóttir [Blóm í vasa]
Kristín Jónsdóttir [Reynistaður, Skerjafirði]
Kristín Þorkelsdóttir Ísfossar Mýrdalsjökuls 1994
Kristín Þorkelsdóttir „Esjan, Kistufell“
Kristján Davíðsson [Afstrakt]
Kristján Davíðsson [Afstrakt]
Leifur Breiðfjörð Stjörnublóm
Listamaður óþekktur [Stúlka að lesa bók]
Listamaður óþekktur [Danskur bóndabær]
Louisa Matthíasdóttir Kindur
Magdalena Margrét Kjartansdótti Teygja
Magnús Jónsson [Landslag - Baula]
Magnús Jónsson Kvöldstemmning við Ísafjörð í gamla
Magnús Th. Magnússon Steinblóm
Margrét Jónsdóttir „Landvættir“
Molander, Thv. [Landslag]
Moser, Ch. [Skútur]
Nína Sæmundsson [Blóm í vasa]
Nína Sæmundsson Jón G. Maríasson
Nína Sæmundsson [Trúður]
Nína Sæmundsson „Fantasy of Taos“
Nína Sæmundsson „Shasta Daisies“
Olson-Arle/Gabbanelli Fredholm Spegling
Ólafur Lárusson botterflyfly
Ólöf Erla Bjarnadóttir Geisli
Ólöf Erla Bjarnadóttir [Skál]
Ólöf Pálsdóttir Ragna
Ómar Skúlason [Afstrakt]
Ómar Skúlason Tilbreyting á leiðinni okkar allra
Pálmi Örn Guðmundsson Hugsuðurinn
Pétur Gautur Svavarsson „Solo per Baritono“
Pétur Halldórsson Nýtt land
Pétur Halldórsson Vatnsendi
Ragnar Kjartansson Ýtt úr vör
Ragnar Kjartansson [Landslag]
Ragnar Kjartansson [Fé í fönn]
Ragnheiður Jónsdóttir „Hátt blæs Heimdallr, horn er á lofti...“
Ragnheiður Jónsdóttir „Völuspá“ Sól tér sortna, sígr fold í
Ragnhildur Stefánsdóttir Útrás
Ragnhildur Stefánsdóttir Rof
Ríkharður Jónsson Tryggvi Gunnarsson áttræður
Ríkharður Valtingojer Jóhannss Ofan þoku I
Ríkharður Valtingojer Jóhannss Ofan þoku II
Ríkharður Valtingojer Jóhannss Ofan þoku III
Ríkharður Valtingojer Jóhannss [grafík 1/10]
Rósa Ingólfsdóttir Óðurinn til krónunnar
Rósa Ingólfsdóttir Óðurinn til krónunnar
Rósa Ingólfsdóttir Óðurinn til krónunnar
Rósa Ingólfsdóttir Óðurinn til krónunnar
Rósa Ingólfsdóttir Óðurinn til krónunnar
Rósa Ingólfsdóttir Óðurinn til krónunnar
Rósa Ingólfsdóttir Óðurinn til krónunnar
Rósa Ingólfsdóttir Óðurinn til krónunnar
Sigfús Halldórsson [Austurstræti]
Sigfús Halldórsson [Austurstræti]
Sigfús Halldórsson Lokastígur
Sigfús Halldórsson Við Höfnina
Sigfús Halldórsson Lækjargata
Sigfús Halldórsson Slippurinn í Reykjavík
Sigrún Sveinsdóttir „Jarlshettur á Kili“
Sigrún Sveinsdóttir „Gróðurvin“
Sigurdís Harpa Arnardóttir „Blár stóll“
Sigurður Guðmundsson „Birds“
Sigurður Magnússon „Maður og blá sól II“
Sigurður Sigurðsson Mýrdalssandur
Sigurður Sigurðsson Davíð Ólafsson
Sigurður Thoroddsen [Landslag]
Sigurður Þórir Sigurðsson „Á óminnisakri“
Sigurður Þórir Sigurðsson Skáldamál
Sigurður Örlygsson Neró
Sigurjón Ólafsson Tveir bogar eða hanar
Sigurjón Ólafsson [Sjómaður]
Sigurjón Ólafsson Kona með blóm
Sigurjón Ólafsson Ég bið að heilsa
Sigurjón Ólafsson Þrenning
Sigurþór Jakobsson Prima Vera
Sigþrúður Pálsdóttir [Afstrakt]
Sigþrúður Pálsdóttir „NÓTNA-BORGIR“ 1/7
Snorri Arinbjarnar Frá Kaupmannahöfn
Snorri Arinbjarnar [Landslag]
Snorri Arinbjarnar [Landslag]
Snorri Arinbjarnar I byens udkant
Snorri Arinbjarnar Eldhúsborðið
Snorri Arinbjarnar Úr Þjórsárdal
Sóley Eiríksdóttir „Hugsað um ást“
Sóley Eiríksdóttir „Instant náttura“
Sóley Eiríksdóttir „Sigling með flugu“
Sóley Eiríksdóttir „Flugulækur“
Steingrímur Sigurðsson New York
Steingrímur Sigurðsson [Afstrakt]
Steingrímur Sigurðsson „Skyldu bátar mínir róa í dag“
Steingrímur Sigurðsson [Blóm í vasa]
Steinunn Svavarsdóttir [Fiskar]
Steinunn Þórarinsdóttir Sjávarmál
Stephen W. Lárus Stephen Eiríkur Guðnason
Stephen W. Lárus Stephen Jón Sigurðsson
Sundbye, Nina Fortuna
Svanhildur Sigurðardóttir Sólin
Svavar Guðnason [Fólk á bryggju]
Sveinn Þórarinsson Hengillinn í Grafningi
Sveinn Þórarinsson [Menn og hestar]
Sveinn Þórarinsson [Landslag]
Sveinn Þórarinsson [Landslag]
Sveinn Þórarinsson Við Þingvallavatn
Sveinn Þórarinsson Kvöld hjá Lágafelli (Esja)
Sveinn Þórarinsson [Tindastóll og Sauðárkrókur]
Tolli Nótt við Hvítinga
Tolli Kvöld við Hvítinga
Tolli Morgunn við Hvítinga
Tolli Neptun - Drömmen
Tolli Neptun - Tre fisk
Tolli Neptun
Tolli Fossinn
Tolli Dalurinn
Tolli Draumur
Úlfur Ragnarsson „Öræfaglóð“
Valtýr Pétursson [Bátar í höfn, Seðlabankahús í baksýn]
Veturliði Gunnarsson [Bátar í vík]
Veturliði Gunnarsson [Afstrakt]
Vignir Jóhannsson „Hjarta Íslands“ (gul)
Vilhjálmur Bergsson Þrennt
Vilhjálmur Einarsson „Frá Norðfirði“
Yngvi Örn Guðmundsson Vesturfarar
Þorgerður Sigurðardóttir Cristus spes nostra
Þorgerður Sigurðardóttir „Heilagur Marteinn frá Tours“
Þorri Hringsson Þrennskonar álegg
Þorvaldur Skúlason [Skógur]
Þorvaldur Skúlason [Hestar]
Þorvaldur Skúlason Blæsevær
Þorvaldur Skúlason „Komposition“
Þórarinn B. Þorláksson Det gamle Lovbjærg
Þórarinn B. Þorláksson [Uppstilling]
Þórarinn B. Þorláksson [Þingvellir]
Þórður Hall „Jöklamynd IV“
Þórður Hall „Samröðun“
Þórður Hall „Jöklamynd II“
Þórður Hall „Jöklamynd I“
Þórunn Rán Jónsdóttir Peningastefnunefnd
Örlygur Sigurðsson Sigtryggur Klemensson