Lögreglumenn dæmdir fyrir að nauðga ferðamanni Kristín Ólafsdóttir skrifar 31. janúar 2019 23:43 Frá 36 Quai des Orfevres. EPA/ETIENNE LAURENT
Tveir franskir lögreglumenn hafa verið dæmdir fyrir að nauðga kanadískri konu í sögufrægum höfuðstöðvum lögreglu í París árið 2014. Mennirnir hlutu sjö ára dóm fyrir brot sín. Konan, kanadískur ferðamaður að nafni Emily Spanton, sagði fyrir rétti að hún hafi hitt hóp lögreglumanna á bar. Þeir hafi svo boðið sér í skoðunarferð um höfuðstöðvarnar en þegar þar var komið nauðguðu þeir henni. Hún sagði þrjá menn hafa verið að verki en aldrei hefur tekist að auðkenna einn þeirra. Mennirnir tveir sem ákærðir voru, Nicolas Redouane og Antoine Quirin, hafa ætíð haldið fram sakleysi sínum og fullyrtu að Spanton hafi veitt samþykki fyrir samförum umrætt kvöld. Dómurinn komst þó að þeirri niðurstöðu að vitnisburður Spanton væri trúanlegur og að lífsýni sýndu jafnframt fram á sekt mannanna. Var mönnunum jafnan gert að greiða Spanton 20 þúsund evrur, um 2,7 milljónir íslenskra króna, í miskabætur. Vettvangur glæpsins, lögreglustöðin við 36 Quai des Orfevres í París, er sögufrægt kennileiti borgarinnar en byggingin er sögusvið ýmissa franskra skáldsagna og bíómynda.
Frakkland Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira