Gulstakkar mættu í sendiráð Íslands í París Birgir Olgeirsson skrifar 30. janúar 2019 11:35 Gulstakkarnir voru sagðir friðsamir og kurteisir þegar þeir báru upp erindi sitt.
Meðlimir hreyfingarinnar sem kennir sig við Gulstakka mætti í sendiráð Íslands í París síðdegis í gær til að óska eftir áliti íslenskra yfirvalda á aðgerðum þeirra. Tilkynntu þeir starfsmönnum sendiráðsins að búsáhaldabyltingin á Íslandi væri þeim fyrirmynd og vildu fá að ræða við sendiherra Íslands í París. Hann var ekki við og brugðu þeir því á það ráð að handskrifa erindi sitt til íslenskra yfirvalda. Gulstakkarnir hófu mótmæli í nóvember síðastliðnum vegna boðaðra eldsneytishækkana frá ríkisstjórn forseta Frakklands, Emmanuel Macron. Mótmælin urðu til þess að Macron dró í land en Gulstakkarnir héldu sínum mótmælum áfram og hafa boðað framboð til Evrópuþingsins í vor. Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir í samtali við Vísi að Gulstakkarnir hefðu lýst yfir hrifningu sinni á búsáhaldabyltingunni og að Ísland væri á einhvern hátt fyrirmynd þeirra í þeim efnum. Hann sagði þá hafa verið fyrirferðarmikla í móttöku sendiráðsins en þeir hafi verið friðsamir og kurteisir þegar þeir báru upp erindi sitt. Þegar þeir höfðu komið skilaboðunum áleiðis, þar sem þeir óskuðu eftir áliti íslenskra stjórnvalda á aðgerðum þeirra, létu þeir sig hverfa en fóru víst í fleiri sendiráð í París. Hér fyrir neðan má sjá myndband af heimsókn Gulstakkanna í sendiráðið.
Frakkland Utanríkismál Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Kveiktu á tónlist til að yfirgnæfa hávaða í mótmælendum Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent Fleiri fréttir Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Sjá meira