
Háttvís er hættulegur
Of vitlaus í hafnaboltann
Stundum hafa varaforsetarnir verið fyrrverandi keppinautar þess sem á endanum hreppir embættið, þannig að á milli forsetans og varaforsetans liggja ýmsar óuppgerðar sakir og jafnvel kuldaleg fyrirlitning. Og eins er til í dæminu að varaforsetaefni sé valið sem algjört gluggaskraut, eins og var raunin þegar George Bush hinn eldri gerði fríðleikspiltinn Dan Quayle frá Indiana að varaforsetaefni sínu til þess að gera framboðið áferðarfallegra og höfða til yfirborðskenndra kjósenda í sveitahéruðum bandaríska miðvestursins. Þetta pólitíska girndarráð reyndist dýrkeypt því Quayle var viðvarandi aðhlátursefni fyrir klaufalega framgöngu sína, hlægilegan þekkingarskort og fádæma lélega kunnáttu í stafsetningu.
Mörgum sem til þekktu fannst George, sonur forsetans, ekki mikið gáfulegri en varaforsetinn. Þegar George W. reyndi að komast til æðstu metorða innan bandarísku hafnaboltadeildarinnar í krafti þess að vera einn af eigendum Texas Rangers, þótti hinum eigendunum hugmyndin fjarstæðukennd. Allir kunnu prýðilega vel við George W. en engum datt í hug að hann hefði skapgerð og vitsmuni sem hentuðu til þess að takast á við hið ábyrgðarmikla embætti forseta bandaríska hafnaboltasambandsins.
Valdamaður til vara En það kann að hafa verið gæfa George W. að þekkja ágætlega sín eigin takmörk. Þegar kom að því að velja frambjóðanda í embætti varaforseta fór hann því allt aðra leið en pabbi. Það var nefnilega engin fegurðarsamkeppni sem skilaði Dick Cheney, þáverandi forstjóra verktakafyrirtækisins Halliburton, í embætti varaforseta Bandaríkjanna. Cheney samþykkti með semingi að bjóða sig fram með drengnum en gegn því skilyrði að fá að ráða sjálfur ýmsu sem fram að því engan hefði órað fyrir að kæmi nálægt valdsviði varaforsetans. Þegar Bush yngri náði kjöri, með 5 atkvæðum gegn 4 í hæstarétti Bandaríkjanna, varð Cheney því að einum valdamesta manni heims þótt fæstir kjósendur hafi í raun og veru endilega ætlað að veita honum slík völd, heldur talið að hann væri bara til vara.
Nú er til sýningar kvikmyndin Vice þar sem fjallað er um ævi þessa manns sem er sannarlega mikill áhrifavaldur í samtímanum þótt hann kunni engin fegrunarráð, húsþrifnaðaraðferðir eða myndist sérstaklega vel í þröngum fötum. Ó, nei. Cheney er áhrifavaldur af gamla skólanum, maður sem beitir áhrifum sínum til alvöru hluta, eins og að gera sprengjuárásir en ekki til þess að fá like á instasnappinu. Nafn myndarinnar vísar auðvitað til embættisheitisins, en það hefur einnig merkinguna löstur. Og löstur Cheneys er græðgin; nánar tiltekið óseðjandi valdagræðgi, sem myndin gerir engar tilraunir til þess að fegra. Cheney „afrekaði“ margt í embætti. Hann er maðurinn á bak við innrásina í Írak, pyntingarnar í Abu Graib, njósnirnar gegn almennum amerískum borgurum og margt margt fleira sem hann segist enn þann dag í dag vera alveg springandi stoltur af.
Áhrifavaldur
Myndin er listaverk—það er að segja, hún er ekki heimildarmynd og gerir ekki tilraun til þess að þykjast segja söguna með hárnákvæmum hætti. Enda er það ekki hægt meðal annars vegna þess hversu iðinn Cheney var að tortíma mikilvægum skjölum um embættisfærslur sínar. En þótt myndin sé ekki sagnfræðilega nákvæm þá segir hún samt mikilvægan sannleika sem ekki má gleymast. Cheney er einn af aðalhöfundum skáldskaparins sem leiddi til innrásarinnar í Írak. Það er nefnilega engin seinni tíma skýring að innrásin hafi verið byggð á lygum. Það hefðu allir átt að geta séð; að minnsta kosti ef þeir voru sæmilega læsir á ensku og aðgang að alþjóðlegum fjölmiðlum.
Því er lýst vel í myndinni hvernig Cheney og félagar voru varla búnir að læra að stilla skrifstofustólana í Hvíta húsinu þegar búið var að draga upp kort af því hvernig skipta ætti olíulindum Íraks niður á amerísku olíufyrirtækin. Og svo þegar svo óheppilega vildi til að ósóminn bin Laden reyndist vera náskyldur vinafólkinu í Sádi-Arabíu, en svarinn hatursmaður Saddams Hussein, þá var alls konar þvættingur framleiddur til að blekkja fólk til þess að trúa hinu gagnstæða. Og svo þegar algjörlega var ljóst að engin tengsl voru milli bin Ladens og Íraks, og engin gjöreyðingarvopn höfðu fundist—þá var samt hafist handa við undirbúning innrásar, með stuðningi bandalags hinna trúgjörnu þjóða.
Þannig tókst Cheney að koma mörgu til leiðar. Meira en hálf milljón borgara féll í Írak. Hann feðraði íslamska ríkið með því að gera ótíndan glæpahund að alþjóðlegri hryðjuverkastjörnu og setti þar að auki allt á annan endann í Írak með því að hafa enga vitræna áætlun um stjórn landsins eftir „frelsunina“. Þúsundum milljarða Bandaríkjadala var sólundað í stríðsreksturinn. En þrátt fyrir allar þessar óheppilegu afleiðingar, dauðsföll, limlestingar, örkuml, fátækt og fleira þá má ekki gleyma að hluthafar Halliburton græddu á tá og fingri og hlýtur hamingja þeirra og velmegun að skipta einhverju máli líka í þessu samhengi.
Góðar hliðar og vondar
En vont fólk á sér líka góðar hliðar, alveg eins og gott fólk á sér slæmar hliðar. Dick Cheney er sýndur í myndinni sem ástkær fjölskyldufaðir sem ber einlæga og hreina ást til konu sinnar og dætra. Hann fórnar meira að segja pólitískum frama tímabundið til að vernda samkynhneigða dóttur sína frá kastljósi fjölmiðla—og sýnir henni algjöra hollustu og ást þegar hún greinir frá tilfinningum sínum. Þótt látið sé liggja að því að jafnvel þessi bönd hafi trosnað síðar, þá mega menn þó eiga það sem þeir eiga. Og ekki var Cheney að klæmast eða kássast upp á fólkið í kringum sig. Hann má eiga það líka—jah, nema ef við teljum með þau hundruð þúsunda sem fórust, örkumluðust og misstu börn sín og maka í lygastríðunum hans. Þeim fannst hann kannski ekki vera neitt sérstaklega til fyrirmyndar.
Skoðun

Það er kominn tími til...
Birgir Rúnar Davíðsson skrifar

Er EES samningurinn gagnlaus fyrir Ísland?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

Er píptest rót alls ills?
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vertu bandamaður kæri bróðir!
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Frá frammistöðuvæðingu til farsældar
Helga Þórey Júlíudóttir skrifar

Ísland á að verja með íslenskum lögum
Arnar Þór Jónsson skrifar

Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði
Logi Einarsson skrifar

Læknafélagið virðir ekki afstöðu félagsmanna sinna
Bjarni Jónsson skrifar

Göngum í takt
skrifar

Hverju lofar þú?
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar

Það er vá fyrir dyrum - Börnin okkar
Svava Þ. Hjaltalín skrifar

Hvert er eðli innflutningtolla? – Hvað er Trump eiginlega að gera? - Hverjir munu líða mest?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Fjölgun hjartasjúkdóma og aukið álag á spítalana í boði Carnivore bylgjunnar?
Guðrún Nanna Egilsdóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar

Allt að vinna, engu að tapa!
Helga Rakel Rafnsdóttir,Margrét M. Norðdahl skrifar

Fiskurinn í blokkunum
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar

Snýst núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar um öryggi… eða mögulega eitthvað annað
Daði Rafnsson ,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar

Þegar vald óttast þekkingu
Halla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar