Valur, sem lék til úrslita árið 2013 og laut þá í lægra haldi fyrir Keflavík, mætir Snæfelli sem er eina liðið af þessum fjórum sem þekkir það að vinna bikarmeistaratitil. Það gerðist árið 2016. Þá var Baldur Þorleifsson aðstoðarþjálfari Inga Þórs Steinþórssonar, en nú er Baldur í brúnni hjá Snæfellsliðinu.
„Það er mikill heiður að fá að stýra Snæfelli í bikarúrslitum og það eru forréttindi að fá að spila þennan leik. Við erum að fara að leika við mjög öflugan andstæðing sem verður erfitt að leggja að velli,“ segir Baldur í samtali við Fréttablaðið um leikinn í kvöld.

Valur mætir í þennan leik með blússandi sjálfstraust, en liðið hefur haft betur í síðustu tíu leikjum sínum og fann síðast fyrir þeirri tilfinningu að tapa leik í lok nóvember á síðasta ári. Guðbjörg Sverrisdóttir, leikmaður Vals, segir hins vegar að það verði dagsform og baráttuandi sem muni ráða úrslitum.
„Ég er mjög spennt fyrir þessum leik og það er fátt annað sem hefur komist að í huga mér undanfarna daga. Ég mæti til vinnu og reyni að einbeita mér þar, en ég er mestmegnis að hugsa um þennan leik og leiðir til þess að vinna hann. Þetta mun ráðast af því hvaða lið mætir betur stemmt til leiks, nær upp betri baráttu og hittir á betri dag. Ég finn fyrir mikilli stemmingu og samhug í þá átt að fara alla leið og vinna bikarinn í fyrsta skipti í sögu félagsins,“ segir Guðbjörg um verkefnið.

„Þó svo að það hafi gengið illa í vetur finnst okkur við hafa spilað á köflum vel og eiga meira skilið. Við förum fullar sjálfstrausts inn í þennan leik og höfum trú á að við getum unnið. Ég hef áður farið í höllina með Val í meistaraflokki og það er sterkur kjarni leikmanna í hópnum sem hefur orðið bikarmeistarar í yngri flokkum. Við erum því vanar þessari umgjörð og stærð leikjanna og það verður ekkert vesen að höndla verkefnið,“ segir Sóllilja.
„Það er mikill spenningur í öllu félaginu þar sem bæði kvenna- og karlaliðin eru í undanúrslitum og svo einnig nokkrir yngri flokkar. Við höfum aldrei komist alla leið í úrslitin og ég hef aldrei áður leikið bikarúrslitaleik þannig að eftirvæntingin er mikil. Þetta verður hörkuleikur og staða liðanna í deildinni skiptir engu máli. Við verðum að eiga toppleik til þess að vinna,“ segir Danielle Rodriguez.