Aron og Gylfi mætast í fimmta sinn í kvöld Kristinn Páll Teitsson skrifar 26. febrúar 2019 08:30 Aron eltir Gylfa í fyrri leik liðanna í vetur. NordicPhotos/Getty
Það verður Íslendingaslagur á Englandi í kvöld þegar Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff taka á móti Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Everton í 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Það munar átta stigum á liðunum fyrir leik kvöldsins en Cardiff getur lyft sér í bili frá fallsæti með sigri í kvöld. Til þess þarf Aron Einar Gunnarsson að hafa betur gegn Gylfa í fyrsta sinn þegar þeir mætast sem andstæðingar á vellinum. Þetta verður í fimmta sinn sem Gylfi Þór og Aron Einar, sem hafa leikið hlið við hlið inn á miðju íslenska landsliðsins undanfarin ár, mætast sem andstæðingar á Englandi og í annað sinn á þessu tímabili. Til þessa hafa lið Arons Einars ekki riðið feitum hesti frá þessum leikjum. Gylfi Þór hefur haft betur í öllum fjórum viðureignunum til þessa, tvívegis með Reading gegn Coventry og síðar með Tottenham og Everton í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi reyndist hetja Everton síðast þegar hann mætti Aroni Einari undir lok nóvember þegar hann skoraði sigurmark Everton í 1-0 sigri á Goodison Park. Eftir það hefur gengi liðanna snúist við og ættu leikmenn Cardiff að vera nokkuð vongóðir um að þeir geti náð í hagstæð úrslit þegar liðin mætast í kvöld. Í þeim fjórtán leikjum sem Everton hefur leikið síðan Gylfi skoraði sigurmarkið í fyrri leik liðanna hefur Everton aðeins unnið þrjá þeirra, tapað níu og gert tvö jafntefli sem hefur skilað liðinu ellefu stigum. Er það sex stigum minna en Cardiff hefur nælt í á sama tíma og hafa aðeins tvö lið í deildinni, Fulham og Huddersfield, fengið færri stig í síðustu fjórtán leikjum.
Birtist í Fréttablaðinu Enski boltinn Mest lesið Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Handbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Sjá meira