Martin Hermannsson átti fínan leik fyrir íslenska landsliðið í kvöld sem vann öruggan sigur á Portúgal í forkeppni EM 2021.
Leikurinn var kveðjuleikur þeirra Jóns Arnórs Stefánssonar og Hlyns Bæringssonar og það var ljóst frá upphafi að leikmenn ætluðu að selja sig dýrt fyrir þá félaga.
„Þetta var kannski ekki auðveldara en við bjuggumst við. Við vissum þó að við værum að fara vinna þetta lið ef við myndum hitta á góðan leik,“ sagði Martin í leikslok.
„Við vorum flottir. Við komum vel stemmdir út. Leikplanið gekk fullkomnlega upp,“ en var þetta ekki einn besti leikur landsliðsins í dágóðan tíma?
„Við vorum virkilega flottir frá byrjun. Vonandi er þetta það sem koma skal. Auðvitað eigum við eftir að spila gegn sterkari þjóðum en það var margt mjög jákvætt og margt miklu betra en það hefur verið upp á síðkastið.“
Martin segir að það hafi gefið aðeins extra að leikmenn væru tilbúnir að leggja allt sitt til þess að Jón Arnór og Hlynur myndu ekki kveðja með tapi á bakinu.
„Það verður mikill missir af þessum meisturum. Við eigum eftir að finna það þegar þeir eru farnir. Þegar við förum á koddann í kvöld á þetta kannski eftir að skella á okkur enn meira en það er undir öðrum komum að stiga upp. Ég held að framtíðin sé björt. Það er fullt sem við getum lært af þeim og yngri leikmenn geti tekið þá til fyrirmyndar.“
Martin ákvað á tímapunkti í leiknum að skalla boltann í hröðu upphlaupi og Martin segir að gamlar fótboltaæfingar í KR hafi skilað sér í kvöld.
„Þetta var fótboltinn í mér. Mig langaði alltaf að verða atvinnumaður í fótbolta. Ég varð að sýna að ég gæti eitthvað ennþá í fótbolta. Ég veit ekki hvað gerðist og ég hélt að þetta hafi ekki verið eins augljóst.“
„Þetta var greinilega frekar augljóst. Vonandi taka krakkar þetta til fyrirmyndar og fara æfa þetta aðeins. Það þarf að nota alla líkamshluta,“ sagði Martin brattur.
